Tónlist

Stjörnur úr Söngva­keppninni saman í stúdíó

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Celebs og Diljá í Söngvakeppninni í vetur.
Celebs og Diljá í Söngvakeppninni í vetur. Hulda Margrét

Diljá Pétursdóttir og vestfirska hljómsveitin Celebs eru í hljóðveri þessa dagana að leggja lokahönd á nýtt lag. Lagið verður gefið út þarnæsta mánudag, 14. ágúst.

Ekki er upp gefið að svo stöddu hvað lagið mun heita en þetta verður þriðja lag Diljár, sem vann Söngvakeppnina í ár og kom fram fyrir Íslands hönd í Eurovision með laginu Power (Lifandi inni í mér).

Celebs vaktu mikla athygli í Söngvakeppninni með laginu Doomsday Dancing (Dómsdags Dans). Hljómsveitin er skipuð systkinunum Valgeiri Skorra, Hrafnkeli Huga og Kötlu Vigdísi Vernharðsbörnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×