Sport

Anton Sveinn komst í úrslit og náði Ólympíulágmarki

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Anton Sveinn McKee syndir til úrslita í tvö hundruð metra bringusundi á morgun.
Anton Sveinn McKee syndir til úrslita í tvö hundruð metra bringusundi á morgun. Simone Castrovillari

Anton Sveinn McKee er kominn í úrslit í tvö hundruð metra bringusundi á HM í fimmtíu metra laug í Furoka í Japan.

Anton synti á 2:09,19 mín­út­um í undanúrslitunum og bætti sig um sekúndu frá undanrásunum. 

Ekki nóg með að Anton hafi tryggt sig inn í úrslitin í hádeginu heldur náði hann einnig Ólympíulágmarki. Hann verður því meðal þátttakenda á Ólympíuleikunum í París á næsta ári. Það verða hans fjórðu Ólympíuleikar.

Anton var með sjöunda besta tímann í undanúrslitunum í hádeginu. Íslandsmet hans í tvö hundruð metra bringusundi er 2:08,74 mín­út­ur og hefur staðið frá 2017.

Anton keppir til úrslita í tvö hundruð metra bringusundi í hádeginu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×