Lífið

Eigandi Vera design selur hönnunarperlu

Íris Hauksdóttir skrifar
Íris Björk Tanja hefur sett glæsilega íbúð sína á sölu.
Íris Björk Tanja hefur sett glæsilega íbúð sína á sölu.

Skartgripahönnuðurinn og athafnakonan, Íris Björk Tanya Jónsdóttir, stofnandi og eigandi Vera design, hefur sett eign sína á sölu. Um er að ræða stórglæsilega og mikið endurnýjaða 195 fm íbúð á tveimur hæðum við Miðleiti. Ásett verð fyrir íbúðina eru 169 milljónir. 

Húsið er teiknað af Helga Hjálmarssyni arkitekt og er staðsett á friðsælum stað með alla helstu þjónustu í göngufæri.

Í eigninni eru þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, stórt stofurými með mikilli lofthæð, sjónvarpshol, eldhús, fataherbergi, tvennar svalir og góð geymsla.

Sameign hússins er sömuleiðis í sérflokki með glæsilegri aðstöðu, poolherbergi, gufubaði og líkamsræktarsal.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um húsið fasteignavef Vísis en hér að neðan eru nokkrar vel valdar myndir.

Setustofan og borðstofan eru saman í mjög stóru rými með mikilli lofthæð.fasteignaljósmyndun

Eldhúsið er rúmgott með miklu skápaplássi og granítborðplötu á borðum við fallega dökka viðar innréttingu.fasteignaljósmyndun

Opið er frá stofunni að stiganum upp á efri hæðina, inn að sjónvarpsholi sem er innst í rýminu og að eldhúsinu.fasteignaljósmyndun

Fallegt rými sem hægt er að nýta sem vinnustofu.fasteignaljósmyndun

Á hæðinni er stórt hjónaherbergi með fallegu gegnheilu eikarparketi á gólfi. Tvö fataherbergi eru innan herbergis.fasteignaljósmyndun

Beint frá hjónaherberginu er fataherbergisskápur. fasteignaljósmyndun

beint

Á gólfi er sérlega vandað gegnheilt eikarparket sem einnig var lagt á Listasafn Íslands á sínum tíma.fasteignaljósmyndun

Baðherbergið er nýuppgert með frístandandi baðkari, handklæðaofni, stórum spegli í lofti og marmaraflísum á gólfi og veggjum.fasteignaljósmyndun

Svalirnar bjóða upp á fallegt útsýni. fasteignaljósmyndun

Gengið eru upp eina hæð frá aðalinngangi hússins að íbúðinni. Aðeins eru tvær íbúðir á stigapallinum. Í húsinu eru þrjú stigahús og eru aðeins fjórar íbúðir í hverjum þeirra.Fasteignaljósmyndun





Fleiri fréttir

Sjá meira


×