Veður

Bjart og hlýtt sumar­veður víða í dag

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Drengir hoppa í hylinn í Elliðaám í sumar. Spurning hvort það verði nógu hlýtt í dag til að endurtaka leikinn.
Drengir hoppa í hylinn í Elliðaám í sumar. Spurning hvort það verði nógu hlýtt í dag til að endurtaka leikinn. Vísir/Vilhelm

Norðaustlægar áttir verða ríkjandi á landinu í dag, skýjað að mestu en víða bjartviðri sunnan- og vestanlands. Það verður gott útivistarveður um helgina og fram í næstu viku, úrkomulítið og líkur á sólarglennum í flestum landshlutum.

Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings um veðurhorfur á landinu á vef Veðurstofunnar.

Veðurstofan spáir austan- og norðaustanátt, víða á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu, á landinu. Hvassast verði norðvestan til og við suðausturströndina og þokubakkar við norður- og austurströndina í nótt og á morgun.

Hiti nái frá sjö stigum við norðausturströndina upp í átján stig sunnan- og suðvestanlands. Veðrið verði síðan svipað á morgun.

Lægð suður af landinu

Lægðabraut suður af landinu veldur þessum norðaustlægu áttum samkvæmt Veðurstofunni og er „ein myndarleg lægð“ núna djúpt suður af Reykjanesi. 

Þrátt fyrir það verður vindur á suðvesturhorninu hægur og því má reikna með að gosmóða verði á sveimi um Reykjanesskagann. 

Í spá veðurvaktar um gasdreifingu segir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs í dag og gæti orðið vart við hana í Grindavík. Eftir hádegi í dag er útlit fyrir hæga breytilega átt á svæðinu og gæti mengunin dreifst víðar um Reykjanesskagann

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 5-13 m/s, hvassast norðvestan til og við suðausturströndina. Skýjað og lítilsháttar væta norðan- og austanlands og þokubakkar við ströndina. Hiti sjö til þrettán stig. Bjartviðri í suðvesturfjórðungi landsins með hita að nítján stigum.

Á laugardag, sunnudag, mánudag, þriðjudag og miðvikudag: Hæg breytileg átt. Skýjað með köflum á landinu og skúrir á stöku stað síðdegis. Hiti víða tólf til sautján stig að deginum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×