Sport

Snæfríður setti þriðja Íslandsmetið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Snæfríður Sól Jórunnardóttir hefur sett tvö Íslandsmet á þremur dögum.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir hefur sett tvö Íslandsmet á þremur dögum. Simone Castrovillari

Snæfríður Sól Jórunnardóttir setti þriðja Íslandsmet sitt á HM í fimmtíu metra laug í nótt.

Í fyrradag sló Snæfríður sitt eigið Íslandsmet þegar hún komst í úrslit í tvö hundruð metra skriðsundi. Hún synti á 1:58,14 mínútum.

Í nótt setti Snæfríður svo Íslandsmet í hundrað metra skriðsundi. Hún synti á 54,74 sekúndum og var jöfn stúlku frá Kýpur. Þær mættust í umsundi í lok mótshlutans þar sem Snæfríður hafði betur og synti á 54,87 sekúndum. Það er einnig undir gamla Íslandsmetinu hennar sem var 54,97 sekúndur.

Snæfríður endaði í 17. sæti og er fyrsti varamaður inn í milliriðlana á HM og fær tækifæri til að keppa þar ef einhver skráir sig úr leik.

Snæfríður setti einnig Íslandsmet í undanrásum í tvö hundruð metra skriðsundi og því alls þrjú Íslandsmet á HM.

Anton Sveinn McKee á fleygiferð.Simone Castrovillari

Anton Sveinn McKee komst í úrslit í tvö hundruð metra bringusundi þegar hann synti á tímanum 2:10,29 mínútum. Hann var níundi inn í úrslitin af sextán keppendum.

Íslandsmetið í greininni á Anton sjálfur, 2:08,74 mínútur, sem hann setti á HM í Búdapest 2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×