Erlent

Nýr utan­ríkis­ráð­herra Kína skipaður í dular­fullri fjar­veru þess gamla

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Wang Yi er bæði forveri og eftirmaður Qin Gang.
Wang Yi er bæði forveri og eftirmaður Qin Gang. AP

Qin Gang, utanríkisráðherra Kína, var í dag vikið úr embætti og nýr maður ráðinn í hans stað. Qin hefur ekki sést opinberlega í heilan mánuð og þykir fjarvera hans heldur dularfull.

Hinn 57 ára gamli Qin Gang, tók við utanríkisráðuneytinu í desember í fyrra, eftir að hafa gegnt embætti sendiherra Kína í Washington. Ekki hefur sést opinberlega til hans síðan þann 25. júní, þegar hann tók á móti diplómötum sem voru að heimsækja Peking, segir í frétt Reuters

Ráðuneytið lýsti því yfir að hann væri frá vinnu vegna heilsufarsástæðna, en veitti ekki nánari upplýsingar. Kínversk yfirvöld hafa ekki gefið útskýringu á því hvers vegna Qin var vikið úr starfi. 

Ja Ian Chong, stjórnmálafræðingur við Alþjóðlega háskólann í Singapúr, segir skort á útskýringum af hálfu yfirvalda skapa fleiri spurningar en hann svarar. 

 Wang Yi forveri og eftirmaður

Fjarvera Qin er ekki sú fyrsta hjá kínverskum embættismanni sem enn hefur ekki verið útskýrð. Xiao Yaqing, fyrrverandi iðnaðarráðherra Kína hvarf af sjónarsviðinu í heilan mánuð í fyrra áður en í ljós kom að verið væri að rannsaka hann í tengslum við spillingu. 

Eftirmaður Qins er hinn 69 ára gamli Wang Yi, er einnog forveri hans. Wang gegndi embættinu á árunum 2013-2022 þar til Qin tók við keflinu. Í fjarveru Qin hefur Wang hlaupið í skarð hans, auk þess að sitja í embætti formanns utanríkismála hjá Kommúnistaflokknum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×