Erlent

Geor­ge A­lagiah látinn

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Alagiah las kvöldfréttir á BBC í tuttugu ár.
Alagiah las kvöldfréttir á BBC í tuttugu ár. Getty

Breski fréttamaðurinn George Alagiah er látinn, 67 ára að aldri, eftir níu ára langa baráttu við krabbamein.

BBC greindi frá andlátinu, en á þeim miðli hefur Alagiah lesið sjónvarpsfréttir klukkan sex síðastliðin tuttugu ár. Fyrir þann tíma starfaði hann sem fréttaritari á átakasvæðum, til að mynda í Rúanda og Írak. Fyrir þau störf hlaut hann verðlaun frá bæði Royal Television Society og Amnesty International UK Media

Alagiah greindist með krabbamein árið 2014. Í fyrra greindi hann frá því að meinið hafði dreift sér. Talsmaður Alagiah sagði í yfirlýsingu Alagiah hafa látist í dag í faðmi fjölskyldunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×