Lífið samstarf

Sól og fjör með Bylgju­lestinni á Sel­fossi

Bylgjulestin
Bylgjulestin mætti í sól og blíðu á Selfossi síðasta laugardag. Mikið fjör var í bænum og afar fjölmennt.  Hér má sjá nokkra hressa þátttakendur í leiknum Tengiru? Myndir/Helga Dögg Reynisdóttir
Bylgjulestin mætti í sól og blíðu á Selfossi síðasta laugardag. Mikið fjör var í bænum og afar fjölmennt.  Hér má sjá nokkra hressa þátttakendur í leiknum Tengiru? Myndir/Helga Dögg Reynisdóttir

Frábært sumarveður og sólarstemning var á Selfossi síðasta laugardag þegar Bylgjulestin mætti í bæinn.

Bæjarhátíðin Kótelettan fór fram sömu helgi og muna bæjarbúar varla eftir eins miklum fjölda gesta í bænum eins og var síðasta laugardag.

Lestarstjórar Bylgjulestarinnar voru þær Vala Eiríks og Erna Hrönn. „Þetta var fyrsti alvöru sumardagurinn í ár og ég get svo svarið að veðrið var best og stemningin sömuleiðis á Selfossi þennan daginn,“ segir Vala. „Að mínu mati er Kótelettan ein skemmtilegasta bæjarhátíðin enda svo margt skemmtilegt í boði. Selfyssingar eru líka æðislegt fólk, gestrisið og lífsglatt, og við Erna kynntumst fullt af stórkostlegu fólki.“

Veðrið lét við bæjarbúa og aðra gesti síðasta laugardag.

Geggjaðir matarvagnar frá Götubitanum voru á staðnum og einnig leiktæki og hoppukastalar frá Köstulum ehf. Boðið var upp á sápukúlufjör, andlitsmálningu, brjóstsykursgerð og margt fleira. Samstarfsaðilar Bylgjunnar settu upp leiki og fyrstu krakkarnir sem mættu fengu gjafapoka og Hekla bauð upp á bílasýningu.

BMX Brós sýndu ótrúleg tilþrif í sólinni.

Einnig var boðið upp á skemmtilegan leik sem heitir Tengiru? en hann er leikur Bylgjulestarinnar í sumar. Þá mætir fólk fyrir utan Bylgjulestarbílinn, setur á sig bláan hanska og setur eina hönd á bílinn. Sá sem heldur lengst tengingu við bílinn fær svakalegan vinning en þátttakendur þurfa á meðan að leysa allskyns krefjandi verkefni með höndina fasta við bílinn.

Boðið var upp á alls kyns kræsingar.

„Um 70 börn héngu utan á bílnum okkar og reyndu að vinna 300.000 kr. gjafabréf frá Icelandair og var því mikið líf í kringum okkur. Það var svolítið erfitt að kíkja út um gluggann og sjá þessu litlu og þrjósku, en buguðu andlit reyna að halda þetta út. En allt í allt einkenndist dagurinn af frábærum félagsskap, frábærum mat og frábæru veðri. Ég gef þessum degi 10 af 10 í einkunn!“

Vala Eiríks var einn lestarstjóra Bylgjulestarinnar á Selfossi. Hér fylgist hún með stöðunni á leiknum Tengiru?

Skoðaðu myndir frá þessum stórskemmtilega degi:

Samstarfsaðilar Bylgjulestarinnar eru Orka náttúrunnar, Vodafone, Hekla, Samgöngustofa og Nettó.

Næsta laugardag, 15. júlí, mætir Bylgjulestin í Hafnarfjörð og verður í beinni milli kl. 12 og 16.

Bylgjulestin, björt og brosandi um allt land í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×