Erlent

Sjóherinn nam „frávik“ á sama tíma og samband rofnaði við Titan

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Það þykir mildi að farþegar Titan hafa líklega látist samstundis þegar farið féll saman.
Það þykir mildi að farþegar Titan hafa líklega látist samstundis þegar farið féll saman. AP/Lindsey Wasson

Fregnir hafa borist af því að bandaríski sjóherinn hafi numið „frávik“ neðansjávar á sunnudag, sem var líklega sprengingin sem varð þegar kafbáturinn Titan féll saman vegna þrýstings.

Sjóherinn er sagður hafa látið strandgæsluna vita en erlendir miðlar segja strandgæsluna hafa ákveðið að halda leit að farinu áfram, þar sem menn voru ekki vissir um orsök „fráviksins“.

Kvikmyndagerða- og ævintýramaðurinn James Cameron, hefur greint frá því að hafa fengið upplýsingar um „hvell“ sem átti sér stað á sama tíma og samband rofnaði við Titan. „Ég vissi hvað hafði gerst,“ segir hann í samtali við Reuters.

Cameron segist hafa greint kollegum sínum frá tíðindunum á mánudag en hann hafi þá þegar verið viss um að farið hefði gefið sig og að farþegarnir fimm væru látnir.

Fjölskyldur látnu hafa sent frá sér yfirlýsingar og þakkir til allra þeirra sem komu að leitinni. 

George Rutherglen, prófessor í hafrétti við University of Virginia, segir hins vegar að hin umfangsmikla leit og hinn mikli viðbúnaður sem atvikið kallaði á yrði örugglega til þess að lög og reglur yrðu hertar.

„Þessi flök á hafsbotni hafa orðið aðgengilegri með framþróun tækninnar. Það þýðir hins vegar ekki að það hafi orðið öruggara að fara niður og skoða,“ segir hann en eins og kunnugt er var Titan á leið að flakinu af Titanic þegar slysið varð.

Salvatore Mercogliano, sagnfræðiprófessor við Campell University í Norður-Karólínu, líkir djúpsjávarleiðöngrum samtímans við það þegar menn voru að uppgötva flugið. Þá hafi tekið marga áratugi að setja lög um hina nýju tækni.

„Það munu koma tímar þegar þú munt ekki hugsa þig tvisvar um að fara um borð í kafbát og niður á 4.000 metra dýpi. En við erum ekki komin þangað.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×