Fótbolti

Macron reynir að sannfæra Mbappe um að vera áfram í PSG

Jón Már Ferro skrifar
Kylian Mbappe  er einn af bestu fótboltamönnum heims.
Kylian Mbappe  er einn af bestu fótboltamönnum heims. vísir/getty

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, mun reyna að sannfæra Kylian Mbappe um að vera áfram hjá Paris Saint-Germain.

Franskir fjölmiðar greyndu frá þessu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Macron reynir að hafa áhrif á feril frönsku stórstjörnunnar. Fyrir ári síðan var Mbappe nálægt því að ganga í raðir Real Madríd en Macron sannfærði hann um að vera áfram.

Nýverið sagði Mbappe að hann myndi ekki framlengja samning sinn við PSG sem rennur út á næsta ári. 

„Ég veit ekki stöðuna á Mbappe en ég mun reyna að fá hann til að vera áfram,“ segir Macron.

Þrátt fyrir að vera einungis 24 ára hefur Mbappe spilað 217 leiki í efstu deild í Frakklandi og skorað í þeim 164 mörk. Í Meistaradeild Evrópu hefur hann skorað 40 mörk í 61 leik. Alls hefur Mbappe skorað 244 mörk í 325 leikjum í öllum keppnum á ferlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×