Erlent

Skilur eftir sig tóma­rúm í stjórn­málum og við­skiptum

Kjartan Kjartansson og Árni Sæberg skrifa
Silvio Berlusconi, einn áhrifamesti maður í sögu Ítalíu, hefur kvatt þennan heim.
Silvio Berlusconi, einn áhrifamesti maður í sögu Ítalíu, hefur kvatt þennan heim. Franco Origlia/Getty

Andlát Silvios Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, er talið geta valdið óróa í ítölskum stjórnmálum á næstunni. Þá liggur ekki ljóst fyrir hver tekur við viðskiptaveldi Berlusconi sem á meðal annars helstu fjölmiðla landsins.

Berlusconi var þaulsetnasti forsætisráðherra í sögu Ítalíu en hneykslis- og sakamál voru aldrei langt undan. Fólk ýmist elskaði hann eða hataði en ekki verður deilt um áhrif hans á ítölsk stjórnmál og fjölmiðla. Viðbúið er að hann skilji eftir sig tómarúm á stjórnmálasviðinu og innan viðskiptaveldisins sem óljóst er hvernig verður fyllt.

Söngvarinn sem gerðist fasteigna- og fjölmiðlamógúll

Fyrstu skref Berlusconi í viðskiptum voru í byggingariðnaði í nágrenni Mílanó þegar hann var á þrítugsaldri. Áður vann hann fyrir sér sem söngvari á skemmtiferðaskipum. Fjölmiðlarekstur var hins vegar það sem gerði Berlusconi að auðugasta og áhrifamesta manni Ítalíu.

Hann beitti klækjum til þess að komast í kringum einokun ríkissjónvarpsins RAI á sjónvarpsmarkaði á 8. og 9. áratug síðustu aldar með því að láta net svæðisbundinna, og að nafninu til ótengdra, stöðva sýna sömu dagskrá. Efnistök og framsetning á sjónvarpsstöðvum Berlusconi voru glyskenndari og meira í ætt við bandarískt skemmtiefni en Ítalir höfðu átt að venjast til þessa. 

Hagnaðist á eigin lögum

Fjöldi stjórnmálaleiðtoga náðist í net saksóknara í umfangsmikilli spillingarrannsókn á 10. áratugnum. Berlusconi nýtti sér lýðhylli sína sem eigandi vinsælustu fjölmiðla landsins til þess að fylla upp í það tómarúm með stofnun Áfram Ítalíu (ít. Forza Italia) árið 1994. 

Frá fundi G7 ríkjanna árið 1994. Frá vinstri til hægri: Jean Chretien, forsætisráðherra Kanada, Helmut Kohl, Þýskalandskanslari, Francois Mitterrand, Frakklandsforseti, Berlusconi og Bill Clinton Bandaríkjaforseti. Franco Origlia/Getty

Gagnrýnendur Berlusconi töldu markmiðið þó frekar að koma honum sjálfum undan löngum armi laganna en umhyggja fyrir ítölsku þjóðinni. Þrálátur orðrómur var á sínum tíma um að Berlusconi hefði haft tengsl við mafíuna þegar hann var fyrst og fremst fasteignakóngur.

Berlusconi gaf stjórnmálunum sömu andlitslyftinguna og fjölmiðlunum. Ítölsk stjórnmál þóttu stirð og leiðinleg en Berlusconi gerði þau að sýningu með fjöldafundum og aukinni áherslu á persónu leiðtogans sjálfs. Það bar árangur og hann varð forsætisráðherra eftir þingkosningar árið 1994. Stjórn hans lifði þó aðeins í ár. 

Hann komst aftur á valdastól árið 2001, dyggilega studdur fjölmiðlaveldi sínu í kosningabaráttunni. Sú stjórn lifði í fimm ár, sú langlífasti í sögu landsins. Síðasta ríkisstjórn Berlusconi sat frá 2008 til 2011 en féll í skugga efnahagsþrenginga í evrukreppunni og persónulegra hneykslismála forsætisráðherrans.

Þrátt fyrir að Berlusconi héldi því statt og stöðugt fram að hann bæri hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti  höfðu lög sem stjórn hans lét setja tilhneigingu til þess að koma honum persónulega og viðskiptaveldi hans til góða. Sum lögin virkuðu hreinlega klæðskerasniðin að hagsmunum forsætisráðherrans eins og þau sem leyfðu kjörnum fulltrúum að eiga fjölmiðlafyrirtæki en ekki reka þau.

Komst undan fjölda saksókna

Þegar kom að saksókn fyrir brot af ýmsu tagi reyndist Berlusconi háll sem áll. Hann var sóttur til saka 35 sinnum en aðeins einu sinni stóð sakfelling yfir honum. Það var í skattsvikamáli sem tengdist fjölmiðlaveldinu sem þá hét Mediaset. Vegna aldurs fékk Berlusconi að gegna samfélagsþjónustu í staðinn fyrir að afplána fangelsisdóm á árunum 2014 til 2015. Honum var þó bannað að gegna kjörnu embætti til ársins 2018.

Tíu sinnum var Berlusconi sýknaður, þar af tvisvar vegna þess að ríkisstjórn hans breytti lögum þannig að meint brot hans töldust ekki lengur glæpur. Í tíu skipti til viðbótar tókst lögmönnum Berlusconi að draga málin svo á langin að brotin voru fyrnd áður en til dóms kom.

Sjálfur hélt Berlusconi því oft fram að málin gegn sér væru runnin undan rifjum pólitískra andstæðinga.

Blygðunarlaus glaumgosi

Berlusconi var blygðunarlaus glaumgosi. Hann kvæntist tvisvar og átti fimm börn en eftir og samhliða því átti hann fjölda „kærasta“ sem voru oft mörgum áratugum yngri en hann. Þegar hann hýsti vini og þjóðarleiðtoga á sveitasetrum sínum voru stundum fáklæddar konur þeim til félagsskapar.

„Ég elska lífið! Ég elska konur!“ sagði Berlusconi árið 2010.

Hann virtist þó ekki bera mikla virðingu fyrir konum eins og ummæli hans um að Angela Merkel, þáverandi Þýskalandskanslari, væri „spikrass“ sem ekki væri hægt að sofa hjá báru merki um.

Berlusconi og Merkel á góðri stund í Berlín árið 2011, sennilega áður en hann kallaði hana spikrass.Sean Gallup/Getty

Árið 2010 hætti lauslæti Berlusconi að vera einhvers konar kátlegt fóður í fyrirsagnir slúðurblaða og varð að hneykslis- og sakamáli. Þá var hann sakaður um að greiða Karimu El Mahrough, sautján ára gömlum næturklúbbsdansara, fyrir kynlíf. Mahrough var þekkt í ítölskum fjölmiðlum undir sviðsnafni sínu, Ruby „hjartaknúsari“.

Eftir að málið Ruby-málið kom upp voru orðin „bunga bunga“ á allra vörum. Það voru veislur þar sem ungar konur fækkuðu fötum fyrir Berlusconi og aldraða vini hans. Bunga bunga var vísun í rasískan og hómófóbískan brandara sem Berlusconi var gjarn á að segja fólki, hvort sem það hafði heyrt hann áður eða ekki.

Berlusconi var ákærður og sakfelldur fyrir að sækjast eftir vændi frá ólögráða barni en var síðar sýknaður þar sem dómstóll taldi ekki sannað að hann hefði vitað að Mahrough væri sautján ára. Þau neituðu bæði að hafa sængað saman.

Upplýst var að Berlusconi hefði reynt að misnota vald sitt með því að ljúga að lögreglustjóra að Mahrough væri frænka þáverandi forseta Egyptalands eftir að hún var handtekin fyrir þjófnað í Mílanó. Berlusconi var nýlega sýknaður af ákæru um að hafa áhrif á framburð vitna í sakamálinu.

Elsta dóttirin talin mögulegur arftaki

Eignir Fininvest, eignarhaldsfélags Berlusconi, voru metnar á 4,9 milljarða evra við árslok 2021, jafnvirði meira en 735 milljarða íslenskra króna. Félagið á stærstu fjölmiðlasamsteypu landsins, útgáfufélag, banka og knattspyrnuliðið Monza. Við andlátið átti Berlusconi um 61 prósent hlut í Fininvest. Fimm börn hans eiga samtals um 29 prósent hlut.

Ekki liggur fyrir hver tekur við Fininvest. Berlusconi hafði ekkert sagt opinberlega um hver yrði arftaki sinn. Reuters-fréttastofan segir að búist sé við að Marina, elsta dóttir Berlusconi, eigi eftir að leika lykilhlutverk.

Marina, sem er 57 ára gömul, og Pier Silvio bróðir hennar hafa bæði tekið þátt í rekstri fyrirtækja Berlusconi undanfarin ár. Hún er nú þegar stjórnarformaður Fininvest og stýrir útgáfufélaginu Mondadori. Pier Silvio hefur á sama tíma annast sjónvarpsstöðvarnar sem eru taldar krúnudjásn fjölskyldunnar.

Yngri börn Berlusconi sem hann átti með seinni konu sinni hafa ekki fengið stór hlutverk í viðskiptaveldi hans. Þau eru á fertugsaldri.

Fólk náið fölskyldunni hefur lýst fjölskylduföðurnum sem „líminu“ sem hélt fjölskyldunni saman og því eru uppi spurningar um það hvort að börnunum takist að halda fjölskyldufyrirtækinu og -auðæfunum saman.

Áfram Ítalía gæti liðið undir lok og aukið völd Meloni

Áfram Ítalía, flokkur Berlusconi, er hluti af samsteypustjórn Giorgiu Meloni forsætisráðherra. Þó að Berlusconi sjálfur hafi ekki átt sæti í ríkisstjórn er talið að fráhvarf hans hleypi óvissu í ítölsk stjórnmál.

Meloni og Berlusconi kynntu samsteypustjórn sína í október síðasta árs.Antonio Masiello/Getty

Meloni sagðist í dag minnast Berlusconi sem „bardagamanns“ fyrst og fremst.

„Hann var maður sem var aldrei hræddur við að verja skoðanir sínar. Það var einmitt það hugrekki og sú áræðni sem gerði hann að einum áhrifamesta manni í sögu Ítalíu,“ sagði Meloni.

Stjórnmálarýnendur á Ítalíu hafa sagt andlát Berlusconi munu hafa mikil áhrif á Áfram Ítalíu og sumir hafa gengið svo langt að segja tilvist flokksins í hættu.

„Áfram Ítalía gæti dáið með Berlusconi, það verður erfitt að fá leiðtoga í hans stað, þetta er einveldi sem líður undir lok með konunginum,“ hefur Reuters eftir Giuliano Cazzola, fyrrverandi þingmanni sem sat á þingi með Berlusconi.

Þá er talið að Bræðralag Ítalíu, flokkur Meloni forsætisráðherra, gæti grætt aukinn stuðning á þinginu og í samsteypustjórninni ef þingmenn Áfram Ítalíu ákveða að færa sig lengra til hægri á pólitíska litrófinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×