Samstarf

Fram­kvæmda­sýslan - Ríkis­eignir f.h. ríkis­sjóðs óska eftir varð­veislu­hús­næði til leigu fyrir Þjóð­skjala­safn Ís­lands

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs

Um er að ræða skjalageymslu auk stoðrýma s.s. móttöku bretta, flokkun, úrvinnslu gagna og starfsmannarými.

Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu í 5 til 10 ár með möguleika á framlengingu. Gerð er krafa um staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu.

Húsnæðið skal afhendast fullbúið og tilbúið til notkunar sem fyrst en eigi síðar en 8 mánuðum frá undirritun leigusamnings.

Ekki er æskilegt að byggingin sé staðsett á áhættusvæði vegna náttúruváar, s.s. jarðskjálfta-, flóða- og sprungusvæði.

Skjalageymsla má vera í 1.000-5.000 m2 rými, gjarnan óskiptu. Þar af er gert ráð fyrir um 300 m2 fyrir stoðrými. Skilyrði er gott aðgengi fyrir stóra sendiferðabíla og möguleiki á affermingu bretta undir skyggni eða innandyra.

Vegna framtíðaráforma er einnig óskað eftir upplýsingum um 3.000-10.000m2 í þéttbýliskjörnum á landinu sem uppfylla sömu skilyrði.

Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is þriðjudaginn, 30. maí 2023.

Fyrirspurnir varðandi verkefnið Varðveisluhúsnæði fyrir Þjóðskjalasafn Íslands skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is.

Fyrirspurnarfrestur rennur út 2. júní 2023 en svarfrestur er til og með 7. júní 2023.

Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 fimmtudaginn 15. júní 2023.

Merkja skal tilboðin; nr. 230516 – Varðveisluhúsnæði fyrir Þjóðskjalasafn Íslands - Leiguhúsnæði

Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr






Fleiri fréttir

Sjá meira


×