Lífið

Siggi tekur fast­­eigna­­markaðinn með stormi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Siggi stormur selur fallega eign sína við Eskivelli 5 til sölu.
Siggi stormur selur fallega eign sína við Eskivelli 5 til sölu. Vísir/Villi/Fasteignaljósmyndun

Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, betur þekktur sem Siggi Stormur, hefur sett íbúð sína við Eskivelli í Hafnarfirði til sölu. 

Um er að ræða 115 fermetra eign með þremur svefnherbergjum í snyrtilegu fjölbýlishúsi.

Stofan er björt og rúmgóð með útgengi á svalir með fallegu útsýni til vesturs.

Eldhúsið er með notalegan borðkrók og u-laga eikarinnréttingu með góðu skápaplássi.

Baðherbergið er flísalagt  í hólf og gólf með baðkari og sturtuaðstöðu. Auk þess er þvottahús með geymslu.

Siggi og fjölskylda hafa búið sér afar snoturt heimili þar sem gráir litatónar og viður mætist á smekklegan og hlýlegan hátt.

Nánari upplýsingar má finna á fasteignavef Vísis.

Stofan er rúmgóð og björt.Fasteignaljósmyndun
Parket er á öllum herbergjum.Fasteignaljósmyndun.
Baðherbergið er með baðkari og sturtuaðstöðu, flísalagt hólf í gólf.Fasteignaljósmyndun
Andyrið er með góðum skápum upp í loft.Fasteignaljósmyndun
Litatónar eru gráir, hvítur og viður sem mætist á huggulegan hátt.Fasteignaljósmyndun
Eldhúsið er rúmgott.Fasteignaljósmyndun

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×