Lífið

Slaufuðu um­deildum breytingum á síðustu stundu eftir há­vær mót­mæli

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ef Diljá kemst áfram á fimmtudag mun hún því geta fagnað árangrinum í faðmi félaga sinna í íslenska hópnum, eins og keppendur hafa gert síðustu ár.
Ef Diljá kemst áfram á fimmtudag mun hún því geta fagnað árangrinum í faðmi félaga sinna í íslenska hópnum, eins og keppendur hafa gert síðustu ár. Eurovision

Hætt var í gær við umdeildar breytingar á kynningu úrslita á undankvöldum Eurovision, eftir hávær mótmæli aðdáenda og annarra tengdra keppninni. Úrslit undankeppnanna í kvöld og á fimmtudag verða þannig kynnt með sama fyrirkomulagi og síðustu ár.

Úrslitin á undankvöldum Eurovision hafa nú um árabil verið kynnt keppendum, og Evrópu, þannig að keppendurnir sitja í rými baksviðs, umkringdir fylgdarliði sínu. Þannig hafa þeir annað hvort fagnað úrslitunum eða harmað þau í faðmi félaga sinna, eins og hér sést dæmi um úr undanúrslitum 2021.

En, taka átti upp nýtt fyrirkomulag í keppninni í ár. Gísli Marteinn Baldursson, íslenski lýsandi Eurovision, segir fyrirhugað fyrirkomulag hafa verið í anda Idol stjörnuleitar.

„Idol-style. Engar bakraddir eða dansara. Og þau sem kæmust áfram færu af sviðinu eitt og eitt. Eftir stæðu svo bara þau sem kæmust ekki,“ segir Gísli Marteinn á Twitter.

Hin nýja uppsetning fékk vægast sagt dræmar undirtektir á búningaæfingu hér í Eurovision-höllinni í Liverpool í gær. Og EBU (Samband evrópskra sjónvarpsstöðva) tilkynnti snarlega að því yrði slaufað.

„Þetta var prófað í dag og aðdáendur keppninnar (og ýmis hærra sett) mótmæltu svo hraustlega að það var hætt við og þetta verður gert einsog venulega með öll í græna. Mikil gleði með þessa breytingu og að yfirstjórnin hafi hlustað,“ segir Gísli Marteinn.

Eurovísir fylgist með gangi mála úti í Liverpool. Fréttamaður fór yfir stemninguna í borginni í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær - og velti því meðal annars upp hvort Bretar séu orðnir raunverulegir Eurovision-aðdáendur eftir að hafa verið í mótþróa gagnvart keppninni um árabil.


Tengdar fréttir

Ræddi að­dáun sína á Jóhönnu Guð­rúnu á túrkís dreglinum

Íslenski Eurovision-farinn Diljá Pétursdóttir mætti galvösk á túrkís dregilinn í Eurovision-landi í Liverpool í Bretlandi fyrr í dag. Diljá stóð meðal annars á höndum og tók smá snúning þar sem hún stillti sér upp fyrir ljósmyndana.

Ekki talið öruggt fyrir hana að vera á al­manna­færi

Ágústa Eva Erlendsdóttir söng- og leikkona, sem fór fyrir Íslands hönd í Eurovision í gervi Silvíu Nætur árið 2006, lýsir algjöru fjölmiðlafári kringum atriðið á sínum tíma. Skapofsi Silvíu Nætur kom henni ítrekað í klandur, bæði gagnvart skipuleggjendum Eurovision og grísku þjóðinni. Skömmu eftir keppnina var henni beinlínis ráðið frá því að vera á almannafæri, slík var heiftin úti í Grikklandi.

Ekki endi­lega viss um að síma­kosningin fari vel með Lor­een

Eurovision-sérfræðingur segir sænskan sigur í Eurovision í ár alls ekki meitlaðan í stein; Finnar gætu vel hreppt hnossið ef dómnefndir verða þeim hliðhollar. Nú þegar stóra stundin nálgast óðfluga gæti hagur Íslands jafnframt vænkast í veðbönkum en hann hefur þó ekki trú á að framlagið hafni ofar en í 15. sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×