Viðskipti innlent

Söfnuðu sjötíu og fimm milljónum í leikinn Dig in

Samúel Karl Ólason skrifar
Forsvarsmenn Vitar Games. Frá vinstri: Vianey G. Gonzales Leal, Baldvin Albertsson, Ævar Örn Kvaran og Egill Ásgrímsson.
Forsvarsmenn Vitar Games. Frá vinstri: Vianey G. Gonzales Leal, Baldvin Albertsson, Ævar Örn Kvaran og Egill Ásgrímsson.

Tölvuleikjafyrirtækið Vitar Games safnaði 75 milljónum króna í fyrstu fjármögnun þess. Hún var framkvæmd með sjóðunum Behold Ventures og Brunnur vaxtarsjóður II. Peningarnir verða notaðir til framleiðslu leiksins Dig in, sem er sá fyrsti sem fyrirtækið gerir.

Dig in er innblásinn af fyrri heimsstyrjöld, byggður á nýstárlegri nálgun þar sem áhersla er sett á umgjörð hernaðar og hinn mannlega kostnað.

„Það er ótrúleg tilfinning eftir allt harkið að vera kominn með um borð tvo öfluga fjárfestingarsjóði sem sjá ekki bara fyrir fjármagni, heldur búa yfir mikilli reynslu og djúpri þekkingu á leikjaiðnaðinum,” segir Baldvin Albertsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Vitar Games í tilkynningu.

Vitar Games var stofnað fyrr á þessu ári. Undirbúningur fyrir stofnun hafði þá staðið yfir frá árinu 2021. Meðstofnandi Baldvins er Ævar Örn Kvaran og í dag starfa fjórir starfsmenn hjá fyrirtækinu.

„Eftir að hafa hitt Baldvin nokkrum sinnum og rætt leikinn, sá ég að hér var maður á ferð með mikinn drifkraft og þrautseigju og gat ég ekki sleppt því að taka þátt. Einnig fannst mér spennandi að prófa eitthvað nýtt eftir að hafa nánast einungis verið í margspilunarleikjum. Ég hlakka til framhaldsins með Vitar Games,“ segir Ævar í áðurnefndri tilkynningu.

Baldvin, sem er menntaður leikari og leikstjóri sameinaði ástríðu sína fyrir mannkynsögu og tölvuleikjum og lagði grunninn að Dig In, fyrsta leik félagsins. Fyrr á árinu slóst svo Ævar Örn, þaulreyndur forritari með yfir 15 ára reynslu í tölvuleikjagerð hjá CCP og Mainframe, í hópinn sem meðstofnandi og tæknistjóri (CTO) Vitar Games.

Stjórn Vitar Games skipa Sigurlína Ingvarsdóttir fyrir Behold Ventures, Sigurður Arnljótsson fyrir hönd Brunnar Ventures og Runno Allikivi fyrir Vitar Games.

Aðrir ráðgjafar Vitar Games er Rúnar Þór Þórarinsson, leikjahönnuður og skapari borðspilsins Asks Yggdrasill, Mika Reini, sem var einn af lykilmönnum Remedy Games, eins stærsta leikjafyrirtækis Finnlands og Jesse Alexander sem er kanadískur sagnfræðingur og vel þekktur áhugamönnum um sögu á samfélagsmiðlum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×