Fótbolti

Glæsi­mark Wi­ef­fer kom Feyenoord yfir í ein­víginu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mats Wieffer skoraði glæsilegt sigurmark í dag.
Mats Wieffer skoraði glæsilegt sigurmark í dag. Joris Verwijst/Getty Images

Feyenoord vann 1-0 sigur á Roma í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Rómverjar klúðruðu vítaspyrnu í leiknum.

Mikil spenna ríkti fyrir leik kvöldsins en félögin mættust í úrslitum Sambandsdeildar Evrópu á síðustu leiktíð. Sá leikur endaði 1-0 fyrir Roma en nú snerist taflið við. Markið kom í síðari hálfleik en í þeim fyrri fengu gestirnir frá Róm vítaspyrnu.

Lorenzo Pellegrini fór á punktinn en spyrna hans endaði í stönginni og staðan 0-0 í hálfleik. Eftir níu mínútna leik í síðari hálfleik komst Oussama Idrissi upp að endalínu og gaf boltann út í teiginn. Mats Wieffer tók boltann á lofti og skoraði þetta líka glæsilega mark.

Mörkin urðu ekki fleiri og lauk leiknum með 1-0 sigri heimamanna. Þeir eru því með forystuna fyrir síðari leikinn sem fram fer í Róm eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×