Erlent

Becker segir fangelsis­vistina allt öðru­vísi en í bíó­myndunum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Becker segist mjög gjarnan vilja snúa aftur til Bretlands til að lýsa Wimbledon en það sé undir BBC komið.
Becker segist mjög gjarnan vilja snúa aftur til Bretlands til að lýsa Wimbledon en það sé undir BBC komið. Getty/Tristar Media

Tenniskappinn Boris Becker, sem bar þrisvar sinnum sigur úr býtum á Wimbledon, segir dvöl sína í fangelsi á Bretlandseyjum hafa verið afar harkalega. Fangelsisvist sé allt öðru vísi en í kvikmyndunum.

Becker var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að fela jafnvirði 2,5 milljón punda í eignum fyrir skattayfirvöldum. Hann afplánaði átta mánuði og var svo vísað úr landi.

„Sá sem segir að fangelsislífið sé ekki erfitt er að ljúga,“ sagði Becker í samtali við BBC Radio 5. „Þetta var mjög harkalegt... allt önnur upplifun en þú sérð í bíómyndum.. en þú hefur heyrt.“

Að sögn Becker þurftu fangarnir að berjast fyrir lífi sínu á hverjum einasta degi. Það gagnaðist honum ekkert að vera þekkt tennisstjarna. Með honum í fangelsinu hefðu verið morðingjar, nauðgarar, dópsalar; hættulegir glæpamenn.

Becker segist hafa gripið til þess ráðs að umkringja sig með „hörðum strákum“.

Fangelsisvistin hefði gert hann sterkari.

Í viðtalinu sagði Becker ekkert geta undirbúið hann undir það að sigra Wimbledon árið 1985, þegar hann var aðeins 17 ára gamall. Frægðin og ríkidæmið hefðu verið „mjög ný“ reynsla.

Becker má ekki ferðast aftur til Bretlands fyrr en á næsta ári og segist mjög gjarnan vilja taka aftur við að lýsa beint frá Wimbledon fyrir BBC.

Umfjöllun Guardian.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×