Samstarf

Bein útsending: Orka náttúrunnar fjallar um upp­setningu hleðslu­stöðva í fjöl­býli

Orka náttúrunnar
Á fundinum, sem hefst kl. 12, munu sérfræðingar frá Orku náttúrunnar fara yfir allt það helsta sem tengist hleðslulausnum fyrir fjölbýli.
Á fundinum, sem hefst kl. 12, munu sérfræðingar frá Orku náttúrunnar fara yfir allt það helsta sem tengist hleðslulausnum fyrir fjölbýli.

Hér að neðan í spilaranum má sjá beina útsendingu frá fyrirlestri og fræðslu um uppsetningu hleðslustöðva í fjölbýli sem fer fram í dag milli kl. 12 og 12.45. Sérfræðingar frá Orku náttúrunnar (ON) munu fara yfir allt það helsta sem tengist hleðslulausnum fyrir fjölbýli.

Meðal þess efni sem verður fjallað má nefna:

  • Hvert er hlutverk ON?
  • Helstu áskoranir rafbílafólks í fjölbýli
  • Kaupa eða leigja?
  • Aðgengi að bílastæðum
  • Hvernig virkar að hlaða rafbíl?
  • Ólíkar lausnir og búnaður

Haraldur Sigfús Magnússon, markaðstjóri ON, mun opna fundinn. Næst tekur við Jóhann Ingi Magnússon, sölustjóri ON, sem mun fara yfir nokkrar áhugaverðar glærur. Að því loknu fara þeir Hrafn Leó Guðjónsson, vörustjóri ON, og Guðjón Hugberg Björnsson, tæknistjóri ON, yfir nokkra gagnlega punkta í tengslum við uppsetningu hleðslustöðva í fjölbýli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×