Ný raðhús úr vistvænu byggingarefni í rótgrónu hverfi Fasteignasalan Lind 24. mars 2023 13:46 Raðhúsin í Furugerði eru á tveimur hæðum. Hver íbúð hefur fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, stórt þvottahús og stæði í bílastæðakjallara fylgir hverri eign. Fasteignasalan Lind kynnir nýbyggð raðhús á tveimur hæðum í Fossvoginum í Reykjavík. Um er að ræða bjartar og nútímalegar íbúðir með hagnýtu skipulagi þar sem hver fermetri er vel nýttur. Umhverfisvænt og vistvænt byggingarefni var notað við byggingu húsanna. Fasteignasalan Lind er með til sölu einstaklega fallegar íbúðir í Furugerði í Fossvoginum í Reykjavík gerðar úr vistvænum byggingarefnum. Um er að ræða nýbyggð raðhús á tveimur hæðum en hver íbúð hefur fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, stórt þvottahús og stæði í bílastæðakjallara fylgir hverri eign. „Þessar íbúðir henta öllum aldurshópum. Um er að ræða frábæra staðsetningu í rótgrónu hverfi þar sem lítið sem ekkert framboð er af nýju sambærilegu húsnæði. Fyrir vikið eru allir innviðir klárir og stutt í flesta þjónustu,“ segir Hrafnkell P. H. Pálmason, löggiltur fasteignasali hjá fasteignasölunni Lind. „Staðsetningin býður upp á gott aðgengi að helstu samgönguæðum borgarinnar, húsin standa í göngufjarlægð við Kringluna og Skeifuna og Fossvogsdalurinn með öllum sínum útivistarmöguleikum er í nokkurra mínútna fjarlægð auk Nauthólsvíkur.“ Raðhúsin eru hönnuð af Arnari Þór Jónssyni hjá Arkís. „Húsin eru skemmtilega hönnuð þar sem hver fermetri er vel nýttur auk þess að bjóða upp á skemmtilegt uppbrot milli húsa. Enda hefur eftirspurnin verið góð og nú þegar er meirihlutinn seldur,“ bætir Hrafnkell við. Umhverfisvænt og vistvænt byggingarefnid Raðhúsin mæta þörfum nútíma fjölskyldna og kröfum samtímans um sjálfbærni en vistvænar krosslímdar timbureiningar (CLT) voru notaðar við byggingu þeirra. „Kostir þeirra eru ótvíræðir enda mjög umhverfisvænt og vistvænt byggingarefni sem gefur ótrúlega góða hljóðvist inni í húsunum. CLT er um leið líklegast mest vaxandi byggingarefni á heimsvísu,“ segir María Rúnarsdóttir, hjá Umbra ehf. sem er eigandi verkefnisins. Raðhúsin eru skemmtilega hönnuð þar sem hver fermetri er vel nýttur. Tvö klósett eru í hverri íbúð. Hljóðvist og loftræstikerfi til fyrirmyndar Nýju raðhúsin standa við Bústaðaveg þar sem löngum hefur verið mikil bílaumferð. „Því var hugað sérstaklega að hljóðvist í húsunum og er hljóðeinangrunargler í öllum íbúðum sem snúa út að umferðargötunni. Það þýðir að ef staðið er inni í húsinu heyrist ekkert í umferðinni fyrir utan. Í framtíðinni er síðan planið hjá borgaryfirvöldum að minnka umferðarhraða í gegnum hverfið.“ Loftræstikerfi er auk þess í öllum íbúðum sem viðheldur fersku lofti þannig að ekki þarf að byrja á að lofta út þegar komið er heim. „Upplifunin er því eins og það sé alltaf nýbúið að lofta út, hvort sem það er í upphafi eða í lok dags.“ Hagkvæmur rekstrarkostnaður Frágangur húsanna að utan er hannaður með það að leiðarljósi að rekstrarkostnaður verði sem hagkvæmastur að sögn Maríu. „Einangrunargildið er hátt og viðhald gluggakerfa og klæðninga er lítið. Húsin eru einangruð að utan með steinull og klædd með ál/stál og timbri.“ Bjartar og nútímalegar íbúðir með hagnýtu skipulagi á mjög eftirsóknarverðu svæði. Sjá nánar á furugerdi.is. Bókaðu skoðun hér SöluaðilarLind fasteignasala: Hrafnkell P. H. Pálmason í síma 690-8236 / hrafnkell@fastlind.is Fasteignasalan Torg: Elka Guðmundsdóttir í síma 863-8813 / elka@fstorg.is Fasteignamarkaður Hús og heimili Mest lesið Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Samstarf Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Viðskipti innlent „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Viðskipti innlent Minnir á flotta tannlæknastofu Samstarf Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Minnir á flotta tannlæknastofu Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Glæsilegir salir sem henta fyrir fjölbreytta viðburði Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Kann best við sig í háspennunni Ný og glæsileg Icebreaker deild opnar í dag Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Nýr CLE 53 frá Mercedes-AMG frumsýndur á laugardag Umferðareiður kjötiðnaðarmaður tilnefndur Landvörðurinn sem endaði í píparanum Velur brauðtertu fram yfir heitan rétt - Gunnar Þór er tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Vill sigra svo hún geti skilað lánsverkfærum Skímó í uppáhaldi - Ásmundur Goði tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Heitur pottur og sauna, tvenna sem getur ekki klikkað! Merkum áfanga fagnað í verslun BYKO á Selfossi Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Greiðsluáskorun VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Sjá meira
Fasteignasalan Lind er með til sölu einstaklega fallegar íbúðir í Furugerði í Fossvoginum í Reykjavík gerðar úr vistvænum byggingarefnum. Um er að ræða nýbyggð raðhús á tveimur hæðum en hver íbúð hefur fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, stórt þvottahús og stæði í bílastæðakjallara fylgir hverri eign. „Þessar íbúðir henta öllum aldurshópum. Um er að ræða frábæra staðsetningu í rótgrónu hverfi þar sem lítið sem ekkert framboð er af nýju sambærilegu húsnæði. Fyrir vikið eru allir innviðir klárir og stutt í flesta þjónustu,“ segir Hrafnkell P. H. Pálmason, löggiltur fasteignasali hjá fasteignasölunni Lind. „Staðsetningin býður upp á gott aðgengi að helstu samgönguæðum borgarinnar, húsin standa í göngufjarlægð við Kringluna og Skeifuna og Fossvogsdalurinn með öllum sínum útivistarmöguleikum er í nokkurra mínútna fjarlægð auk Nauthólsvíkur.“ Raðhúsin eru hönnuð af Arnari Þór Jónssyni hjá Arkís. „Húsin eru skemmtilega hönnuð þar sem hver fermetri er vel nýttur auk þess að bjóða upp á skemmtilegt uppbrot milli húsa. Enda hefur eftirspurnin verið góð og nú þegar er meirihlutinn seldur,“ bætir Hrafnkell við. Umhverfisvænt og vistvænt byggingarefnid Raðhúsin mæta þörfum nútíma fjölskyldna og kröfum samtímans um sjálfbærni en vistvænar krosslímdar timbureiningar (CLT) voru notaðar við byggingu þeirra. „Kostir þeirra eru ótvíræðir enda mjög umhverfisvænt og vistvænt byggingarefni sem gefur ótrúlega góða hljóðvist inni í húsunum. CLT er um leið líklegast mest vaxandi byggingarefni á heimsvísu,“ segir María Rúnarsdóttir, hjá Umbra ehf. sem er eigandi verkefnisins. Raðhúsin eru skemmtilega hönnuð þar sem hver fermetri er vel nýttur. Tvö klósett eru í hverri íbúð. Hljóðvist og loftræstikerfi til fyrirmyndar Nýju raðhúsin standa við Bústaðaveg þar sem löngum hefur verið mikil bílaumferð. „Því var hugað sérstaklega að hljóðvist í húsunum og er hljóðeinangrunargler í öllum íbúðum sem snúa út að umferðargötunni. Það þýðir að ef staðið er inni í húsinu heyrist ekkert í umferðinni fyrir utan. Í framtíðinni er síðan planið hjá borgaryfirvöldum að minnka umferðarhraða í gegnum hverfið.“ Loftræstikerfi er auk þess í öllum íbúðum sem viðheldur fersku lofti þannig að ekki þarf að byrja á að lofta út þegar komið er heim. „Upplifunin er því eins og það sé alltaf nýbúið að lofta út, hvort sem það er í upphafi eða í lok dags.“ Hagkvæmur rekstrarkostnaður Frágangur húsanna að utan er hannaður með það að leiðarljósi að rekstrarkostnaður verði sem hagkvæmastur að sögn Maríu. „Einangrunargildið er hátt og viðhald gluggakerfa og klæðninga er lítið. Húsin eru einangruð að utan með steinull og klædd með ál/stál og timbri.“ Bjartar og nútímalegar íbúðir með hagnýtu skipulagi á mjög eftirsóknarverðu svæði. Sjá nánar á furugerdi.is. Bókaðu skoðun hér SöluaðilarLind fasteignasala: Hrafnkell P. H. Pálmason í síma 690-8236 / hrafnkell@fastlind.is Fasteignasalan Torg: Elka Guðmundsdóttir í síma 863-8813 / elka@fstorg.is
SöluaðilarLind fasteignasala: Hrafnkell P. H. Pálmason í síma 690-8236 / hrafnkell@fastlind.is Fasteignasalan Torg: Elka Guðmundsdóttir í síma 863-8813 / elka@fstorg.is
Fasteignamarkaður Hús og heimili Mest lesið Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Samstarf Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Viðskipti innlent „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Viðskipti innlent Minnir á flotta tannlæknastofu Samstarf Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Minnir á flotta tannlæknastofu Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Glæsilegir salir sem henta fyrir fjölbreytta viðburði Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Kann best við sig í háspennunni Ný og glæsileg Icebreaker deild opnar í dag Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Nýr CLE 53 frá Mercedes-AMG frumsýndur á laugardag Umferðareiður kjötiðnaðarmaður tilnefndur Landvörðurinn sem endaði í píparanum Velur brauðtertu fram yfir heitan rétt - Gunnar Þór er tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Vill sigra svo hún geti skilað lánsverkfærum Skímó í uppáhaldi - Ásmundur Goði tilnefndur í Iðnaðarmanni ársins Heitur pottur og sauna, tvenna sem getur ekki klikkað! Merkum áfanga fagnað í verslun BYKO á Selfossi Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Greiðsluáskorun VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Sjá meira