Innlent

Næturstrætó snýr aftur um helgina

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Fram kemur í tilkynningu að borgin sé með þessu að svara ákalli um bættar samgöngur í miðbænum um helgar en ekki náðist samstaða í stjórn Strætó um að hefja aftur akstur næturstrætó.
Fram kemur í tilkynningu að borgin sé með þessu að svara ákalli um bættar samgöngur í miðbænum um helgar en ekki náðist samstaða í stjórn Strætó um að hefja aftur akstur næturstrætó. Vísir/Vilhelm

Næturstrætó mun hefja akstur innan Reykjavíkurborgar aðfaranótt laugardags þann 25. febrúar og aka samkvæmt áætlun. Fjórar leiðir munu aka frá miðbænum í úthverfi borgarinnar.

Reykjavíkurborg hefur gert þjónustusamning við Strætó bs um að hefja akstur næturstrætó eingöngu innan borgarinnar. Næturstrætó mun aka úr miðbæ Reykjavíkur samkvæmt tímaáætlun.

Fram kemur í tilkynningu að borgin sé með þessu að svara ákalli um bættar samgöngur í miðbænum um helgar en ekki náðist samstaða í stjórn Strætó um að hefja aftur akstur næturstrætó.

Reykjavíkurborg bar því fram tillögu fyrir stjórn Strætó um að Strætó annist þjónustu fyrir íbúa borgarinnar og bjóði upp á næturstrætó sem eingöngu gengur í Reykjavík. Stjórn Strætó samþykkti þessa tillögu en allur kostnaður vegna þjónustunnar mun falla á Reykjavíkurborg.

Fjórar næturleiðir munu aka frá miðbænum og út í úthverfi Reykjavíkur, þ.e. Breiðholt, Úlfarsárdal, Norðlingaholt og Grafarvog.

Fjórar leiðir munu aka frá miðbænum í úthverfi borgarinnar.Strætó

Næturstrætó ekur úr miðbæ Reykjavíkur á aðfaranóttum laugardags og sunnudags.

Aðeins er hægt að taka næturstrætó á leið úr miðbænum en ekki til baka í átt að miðbænum.

Vagnarnir aka ekki skv. hefðbundinni tímatöflu. Eingöngu er gefinn upp brottfaratími úr miðbænum og vagnarnir aka inn í hverfin án þess að tímajafna.

Viðskiptavinir sem ætla að nýta vagninn á miðri leið er bent á að fylgjast með staðsetningu vagna í rauntíma í Klapp appinu eða inn á straeto.is

Fargjöld í næturstrætó

Stakt fargjald í næturstrætó er 1100 kr. en það jafngildir tvöföldu fargjaldi. Hægt er að kaupa sérstaka næturmiða í Klapp greiðslukerfi en eftir sem áður geta handhafar mánaðar- og árskorta notað kortin sín um borð í næturstrætó. Ekki verður hægt að greiða með greiðslukorti um borð í næturstrætó þar sem næturmiði er keyptur í gegnum Klapp greiðslukerfi. Jafnframt er hægt að borga með reiðufé.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×