Real vaknaði undir lokin

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Real fagna öðru marka sinna í kvöld.
Leikmenn Real fagna öðru marka sinna í kvöld. EPA-EFE/Jesus Diges

Real Madríd vann Osasuna 2-0 á útivelli í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í kvöld. Mörkin komu seint í síðari hálfleik.

Meistararnir frá Madríd eru í eltingaleik við Barcelona sem trónir á toppi deildarinnar um þessar mundir. Í hálfleik virtist sem bilið á milli liðanna yrði enn lengra en þá var staðan enn markalaus.

Það var ekki fyrr en á 78. mínútu sem Federico Valverde kom Real Madríd yfir eftir sendingu frá Vinicius Junior. Þegar ein mínúta var til loka venjulegs leiktíma hélt Vini Jr. að hann hefði komið Real í 2-0 en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Varamaðurinn Marco Asensio kom hins vegar gestunum 2-0 yfir í uppbótartíma og þar við sat, reyndust það lokatölur leiksins.

Real er sem stendur í 2. sæti með 51 stig að loknum 22 leikjum á meðan Barcelona er á toppnum með 56 stig eftir að hafa leikið aðeins 21 leik.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira