Sport

Veðmálaskandall skekur snókerheiminn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Zhao Xintong var dæmdur í bann í gær.
Zhao Xintong var dæmdur í bann í gær. Will Matthews/PA Images via Getty Images

Tíu kínverskir snókerspilarar hafa verið dæmdir í bann af Alþjóðasnókersambandinu vegna gruns um aðild þeirra að stórfelldu veðmálasvindli innan íþróttarinnar.

Alþjóðasambandið sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem greint er frá því að Jason Ferguson, stjórnarformaður sambandsins, hafi ákveðið að banna þá Zhang Jiankang og Zhao Xintong frá því að taka þátt á heimsmótaröðinni í snóker.

Þeir sæta rannsókn vegna ásakana um hagræðingu úrslita og er ákvörðun sambandsins hluti af víðtækri rannsókn vegna slíks, sem talið er stafa af veðmálasvindli.

Zhao Xintong átti að spila við fjórfaldan heimsmeistara Mark Selby á hinu árlega Masters-móti sem hefst í Alexandra Palace í Lundúnum um helgina, en ljóst er að ekki verður af því. Xintong fagnaði sigri á breska meistaramótinu árið 2021.

Þeir Xintong og Jiankang eru níundi og tíundi í röð kínverskra snókerspilara sem hafa hlotið bann vegna meints veðmálasvindls. Liang Wenbo var fyrstur í október en sjö snókerspilarar voru skikkaðir í bann í desember.

Þeir Lu Ning, Li Hang, Zhao Jianbo, Bai Langning og Chang Bingyu voru bannaðir snemma í desember. Yan Bingtao, sigurvegari Masters-mótsins árið 2021, fylgdi um miðjan mánuðinn og Chen Zifan varð sá áttundi í lok desember.

Í tilkynningu Alþjóðasnókersambandsins segir að „víðtæk rannsókn þess væri langt komin“ og að tilkynningar vegna hennar sé að vænta fljótlega. Þegar henni lýkur verði möguleikar á kærum gegn mönnunum tíu skoðaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×