Viðskipti innlent

Fyrstu loðnufarmarnir á leið til Vopnafjarðar og Norðfjarðar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Róbert Hafliðason, skipstjóri á Víkingi, stefnir að því að landa loðnu á Vopnafirði í fyrramálið.
Róbert Hafliðason, skipstjóri á Víkingi, stefnir að því að landa loðnu á Vopnafirði í fyrramálið. Arnar Halldórsson

Búist er við að fyrstu loðnu þessarar vertíðar verði landað á Austfjörðum á morgun. Von er á farmi til Vopnafjarðar í fyrramálið og öðrum til Norðfjarðar eftir hádegi. Nýafstaðin loðnuleit gefur ekki tilefni til að auka loðnukvótann, að mati Hafrannsóknastofnunar.

Fjallað var um upphaf loðnuvertíðarinnar í fréttum Stöðvar 2 en hafrannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson voru bæði við loðnuleit alla síðustu viku ásamt Beiti, skipi Síldarvinnslunnar.

Beitir NK og Víkingur AK voru fyrr í dag á loðnuveiðum úti fyrir Norðurlandi. Leitarferlar skipa Hafrannsóknastofnunar eru táknaðir með ljósbláum og bleikum lit. Gulu ferningarnir sýna hafísröndina.

Útgerðarfyrirtækin kostuðu leitina í von um að meiri loðna fyndist. Þær vonir brugðust en lítið sást af loðnu á miðunum, að sögn Guðmundar Óskarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun, og sagði hann magnið það lítið að það gæfi ekki tilefni til þess að endurskoða loðnukvótann.

Rannsóknaskipin leituðu vestur og norður með landinu, á meðan Beitir kom á móti þeim að austan, og mat Guðmundur það svo að megnið af loðnunni væri enn undir hafísnum út af Vestfjörðum.

Sturla Þórðarson, skipstjóri á Beiti NK.Sigurjón Ólason

Rannsóknaskipin voru hins vegar vart farin af miðunum heim til Hafnarfjarðar þegar loðnuskipin Beitir NK og Víkingur AK hófu að kasta á loðnu austan við Kolbeinseyjarhrygg á laugardag. Beitir var í dag kominn með rúm ellefu hundruð tonn en Víkingur tæp sexhundruð tonn. 

Frá Vopnafirði. Þar rekur Brim uppsjávarvinnslu.Stöð 2

Skipstjórinn á Beiti, Sturla Þórðarson, lýsti loðnunni sem fallegri og sama sagði skipstjórinn á Víkingi, Róbert Hafliðason, sem áformaði að landa henni á Vopnafirði í fyrramálið til frystingar í uppsjávarvinnslu Brims.

Beitir mun hins vegar sigla inn til Norðfjarðar til löndunar hjá Síldarvinnslunni og býst Sturla við að koma þangað um miðjan dag.

Beitir NK, skip Síldarvinnslunnar, er væntanlegur inn til Norðfjarðar eftir hádegi á morgun.Einar Árnason

Hafrannsóknastofnun áformar aðra loðnuleit í janúar og eftir hana skýrist hvort loðnukvótinn verði aukinn. En svo mikið er víst: Loðnuvertíðin er hafin.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Loðnuveiðar hafnar en ekki talið tilefni til að auka kvóta

Fyrsta loðnan á þessari vertíð er veidd og var skip Síldarvinnslunnar, Beitir, komið með ellefuhundruð tonn nú laust fyrir hádegi. Hafrannsóknastofnun telur ekki tilefni til þess að auka loðnukvótann, eftir auka loðnuleiðangur sem lauk um helgina.

Komandi loðnu­ver­tíð gæti skilað allt að 30 milljörðum í þjóðarbúið

Þrátt fyrir að loðnukvóti komandi vertíðar stefni í að verða um fjórðungur af síðustu vertíð í lönduðum tonnum mælt, dregst vænt útflutningsverðmæti loðnuafurða aðeins saman um helming. Þetta kom fram í máli Gunnþórs Ingvasonar, forstjóra Síldarvinnslunnar í kynningu á uppgjöri félagsins fyrir þriðja ársfjórðung.

Vestmannaeyjar sem fyrr stærsta loðnuverstöðin

Einni verðmætustu loðnuvertíð Íslandssögunnar er lokið og er áætlað að afurðirnar skili um 55 milljarða króna gjaldeyristekjum. Vestmannaeyjar halda áfram stöðu sinni sem stærsta loðnuverstöð landsins.

Loðnukvótinn aukinn á sama tíma og verðmætasta veiðin er hafin

Íslenskar loðnuútgerðir fá um fimmtíu þúsund tonna viðbótarkvóta í loðnu þar sem Norðmönnum tókst ekki að klára sinn kvóta áður en veiðitímabili þeirra á Íslandsmiðum lauk. Þetta gerist á sama tíma og verðmætasti þáttur loðnuvertíðarinnar, hrognavinnslan, er að hefjast.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×