Samstarf

Einn flottasti lúxussalur landsins rís úr þaki Kringlunnar

Kringlan
Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar spjallaði við Arnar Gauta um framkvæmdirnar.
Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar spjallaði við Arnar Gauta um framkvæmdirnar.

Einn glæsilegasti lúxus bíósalur landsins er meðal nýjunga á 3. hæð Kringlunnar en salurinn opnar með frumsýningu á stórmyndinn Avatar í desember. Arkitektar og verkfræðingar Kringlunnar fengu þá djörfu hugmynd að byggja salinn ofan á þak Kringlunnar.

Klippa: Einn flottasti lúxussalur landsins rís úr þaki Kringlunnar

Öll hæðin hefur verið endurgerð frá grunni og ný mathöll mun líta dagsins ljós á næstu dögum. Nýir veitingastaðir í bland við eldri og rótgróna staði verða staðsettir á hæðinni. Umhverfið verður allt hið hlýlegasta og mjög vandað til verka. Gamla góða Kringlukráin fær einnig hressilega upplyftingu. Opnunartími mathallarinnar verður lengri en afgreiðslutími verslana í Kringlunni, eða til kl. 21 öll kvöld. Þá verður nýtt Ævintýraland tekið í notkun í desember þar sem boðið verður upp á barnagæslu fyrir börn 3 – 9 ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×