Innlent

Bjarni Sæmundsson í úthafsrækjuleiðangri

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Úthafsrækjuleiðangur Bjarna Sæmundssonar mun taka sautján daga.
Úthafsrækjuleiðangur Bjarna Sæmundssonar mun taka sautján daga. Sigurborg Jóh.

Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson er að hefja sautján daga leiðangur til að skoða útbreiðslu og magn rækju í úthafinu fyrir norðan og norðaustan landið. Um borð eru fjórir vísindamenn og tólf manna áhöfn en alls verða teknar 86 stöðvar í stofnmælingunni.

Samkvæmt Hafrannsóknarstofnun hefur úthafsrækjusvæðið fyrir norðan og norðaustan landið verið kannað árlega með sambærilegum hætti frá árinu 1987 að undanskildum árunum 2019 og 2021. Gögnin séu síðan notuð til að meta stofnstærð og veita ráðgjöf um veiðar á úthafsrækju.

Í tilkynningu frá Hafró segir að í leiðangrinum verði einnig haldið áfram með merkingar á þorski en átak hófst í þorskmerkingum árið 2019. Frá þeim tíma hafi um 17 þúsund þorskar verið merktir og hafa merki úr tæplega 700 þorskum skilað sér til Hafrannsóknastofnunar.

Hægt er að fylgjast með gangi leiðangursins á skip.hafro.is.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×