Umfjöllun: Dan­mörk-Finn­land 1-0 | Harder hélt lífi í vonum Danmerkur

Hjörvar Ólafsson skrifar
Pernille Harder skoraði sigurmarkið með skalla af stuttu færi. 
Pernille Harder skoraði sigurmarkið með skalla af stuttu færi.  Vísir/Getty

Danmörk lagði Finnland að velli með einu marki gegn engu þegar liðin áttus við í B-riðli Evópumóts kvenna í fótbolta í dag. 

Bæði lið töpuðu stórt í fyrstu umferð riðlakeppninnar en Danir töpuðu fyrir Þjóðverjum og Finnar á móti Spánverjum. 

Það var Pernille Harder sem skoraði markið sem skildi liðin að þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir af leiknum en undir lok leiksins þurfti fyrirliði danska liðsins að yfirgefa völlinn vegna höfuðhöggs. 

Ekki virtist Harder þó vera mjög meint af og verður hún að öllum líkindum með þegar Danir mæta Spáni í lokaumferð riðilsins. 

Þýskaland og Spánn leiða saman hesta sína í seinni leik dagsins í annarri umferð B-riðilsins klukkan 19.00 í kvöld. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira