Fótbolti

Sjáðu öll sjö mörkin í endurkomusigri KA gegn ÍBV

Atli Arason skrifar
Elfar Árni skoraði glæsilegt sigurmark KA eftir undirbúning Hallgríms Mars.
Elfar Árni skoraði glæsilegt sigurmark KA eftir undirbúning Hallgríms Mars. Bára Dröfn

Eyjamenn voru grátlega nálægt sínum fyrsta sigri í Bestu-deildinni í gær en þeir komust tvívegis yfir gegn KA áður norðanmenn sneru leiknum við sér í hag.

Sito kom ÍBV yfir strax á 6. mínútu áður en Ívar Örn Árnason og Nökkvi Þeyr Þórisson skoruðu næstu tvö mörk á 12. og 18. mínútu. Sito jafnaði svo leikinn í 2-2 og Halldór Jón Sigurður Þórðarson kom Eyjamönnum aftur yfir rétt fyrir hálfleik.

Daníel Hafsteinsson og Elfar Árni Aðalsteinsson sáu svo til þess að KA fór með sigur af hólmi með sitthvoru markinu í síðari hálfleik. Lokatölur 4-3 í æsispennandi leik. 

Elfar Árni skoraði sigurmarkið með hælspyrnu eftir afar skemmtilegt samspil KA-inga en öll mörkin sjö má sjá í spilarnum hér að neðan.

Klippa: Mörkin: KA - ÍBV




Fleiri fréttir

Sjá meira


×