Fótbolti

Mikil vonbrigði fyrir Ceciliu Rán

Hjörvar Ólafsson skrifar
Cecilia Rán er fingurbrotin og verður ekki með á mótinu. 
Cecilia Rán er fingurbrotin og verður ekki með á mótinu.  Vísir/Vilhelm

Cecilia Rán Rúnarsdóttir, markvörður íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, er fingurbrotin og leikur þar af leiðandi ekki með íslenska liðinu á Evrópumótinu sem fram fer í Englandi þessa dagana. 

Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum KSÍ í dag. 

Þar segir enn fremur að Auður Scheving Sveinbjörnsdóttir leysi Cecilu Rán af hólmi en hún komi til móts við hópinn í Crewe í dag. 

Íslenska liðið hefur keppni á mótinu á morgun þegar liðið mætir Belgíu á æfingavelli Manchester City. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×