Fótbolti

Svona var blaða­manna­fundurinn fyrir leik ís­lensku stelpnanna á móti Belgíu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir er tekinn við fyrirliðabandi íslenska landsliðsins á ný,
Sara Björk Gunnarsdóttir er tekinn við fyrirliðabandi íslenska landsliðsins á ný, Getty/Alex Livesey

Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson og fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir mættu á blaðamannafund á Academy Stadium í Manchester þar sem leikur Íslands og Belgíu fer fram á morgun.

Þetta verður fyrsti leikur íslenska liðsins á Evrópumótinu í Englandi og eins og flestir vita þá er gríðarlega mikilvægt að byrja mótið vel ekki síst á móti liði sem er fyrir fram vera í svipaðri stöðu og íslenska liðið í þessum D-riðli mótsins.

Strax eftir blaðamannafundinn mun íslenska liðið síðan æfa á vellinum í Manchester í fyrsta sinn og þar verður lokaundirbúningur liðsins fyrir leikinn á morgun.

Vísir sýndi beint frá þessum blaðamannafundi og má sjá upptökuna frá fundinum hér fyrir neðan.

Klippa: Blaða­manna­fundur fyrir leikinn gegn Belgíu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×