Sport

Swiatek vann Opna franska meistaramótið

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Iga Swiatek
Iga Swiatek EPA-EFE/YOAN VALAT

Pólska tenniskonan Iga Swiatek vann Opna franska meistaramótið nú fyrir skömmu eftir að hún bara sigurorð af hinni ungu Coco Gauff frá Bandaríkjunum.

Swiatek, sem var talin sigurstranglegust fyrir mótið og situr í efsta sæti heimslistans, olli engum vonbrigðum og vann með nokkrum yfirburðum í tveimur settum. 6-1 og 6-3. Swiatec vann þar með Opna franska í annað skiptið en hún vann líka árið 2020.

Swiatek hafði talsverða yfirburði á mótinu sjálfu og tapaði einungis einu setti. En það var í átta kvenna úrslitum.

Coco Gauff, sem er einungis 18 ára að aldrei er ein af vonarstjörnum tennisheimsins og er þetta líklega ekki í síðasta skiptið sem við sjáum hana í úrslitum á stórmóti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×