Innlent

Diljá segir hatur og mann­fyrir­litningu vella upp úr séra Davíð

Jakob Bjarnar skrifar
Diljá Mist spyr hvort ekki sé kominn tími á breytingar þegar upp úr Séra Davíð Þór velli daglega hatur og mannfyrirlitning.
Diljá Mist spyr hvort ekki sé kominn tími á breytingar þegar upp úr Séra Davíð Þór velli daglega hatur og mannfyrirlitning. vísir/vilhelm

Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, 4. varaforseti Alþingis, vandar séra Davíð Þór Jónssyni sóknarpresti í Laugarneskirkju ekki kveðjurnar í pistli sem birtist í Fréttablaðinu.

Pistillinn er ekki langur en þeim mun harðorðari. Hann hefst á hugleiðingum forsetans um að þekkt sé og skiljanlegt að fólk skipti um starfsvettvang yfir ævina í ljósi hækkandi aldurs. Fólk á miðjum aldrei sé orðið „eirðarlaust og gramt, jafnvel þannig að það smitist út í umhverfið, ætti e.t.v. að hugsa sér til hreyfings,“ skrifar Dilja og segir að hún og fleiri hafi orðið áskynja óstöðugrar hegðunar sóknarprests í Reykjavík.

Segir prest misnota hempuna

Hún segir að til prestsstarfa veljist menn sem búa yfir hæfileikanum að miðla málum en því sé ekki að fagna hvað þennan umrædda prest varðar.

„Umræddur prestur nefnir tiltekið fólk fasista og dæmir það til helvítisvistar og réttlætir skrifin með vísan til Biblíunnar. Það er því sannarlega ekki hægt að aðgreina prestinn og persónuna,“ segir Diljá.

Liggur þá fyrir, hafi einhver velkst þar í vafa um, að hún er að tala um Séra Davíð Þór en nýlegur pistill sem hann birti á Facebook hefur vakið mikla athygli og leiddi til þess að Agnes M. Sigurðardóttir biskup veitti honum áminningu.

Diljá segir Davíð hafa notað hempuna og Guðs hús til að predika „eigin stjórnmálaskoðanir yfir fækkandi sóknarbörnum sínum. Ég er því fegin eins og fleiri að hann er ekki minn sóknarprestur. Þegar hatur og mannfyrirlitning er farin að vella daglega upp úr prestinum undir þeim formerkjum að hann sé kærleiksríkari og betri en aðrir, er þá ekki kominn tími á breytingar?“

Ræðst að forsætisráðherra sem tryggt hefur kirkjunni fjárhagslegt öryggi

Fyrir liggur að Séra Davíð Þór er ekki í hávegum hafður meðal stjórnarliða en hann hefur gagnrýnt stjórnvöld harkalega í tengslum við fyrirhugaða brottvikningu hælisleitenda. Pistill þingmannsins tekur af öll tvímæli þar um. 

Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins birti grein í Morgunblaðinu í gær þar sem hann segir Séra Davíð hafa ráðist gegn forsætisráðherra með illmælgi, sem skjóti skökku við því það hafi verið undir forystu hans sem endurnýjað var kirkjujarðasamkomulag ríkis og kirkju sem hefur skapað kirkjunni fjárhagslegt sjálfstæði og öryggi.Vísir/vilhelm

Þá birti Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokks grein í Morgunblaðinu í gær undir fyrirsögninni „Illmælgi klerks“ þar sem hann beinir einnig spjótum sínum að Séra Davíð Þór. Grein sinni lýkur hann á því að segja, eftir að hafa haldið því fram að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafi mátt sitja undir „rætinni illmælgi“,  að það skjóti skökku við. Því skemmst sé að minnast þess að undir „forystu forsætisráðherra hefur verið endurnýjað kirkjujarðasamkomulag ríkis og kirkju sem reynst hefur kirkjunni traustur bakhjarl og hefur gegnt lykilhlutverki í að skapa henni fjárhagslegt sjálfstæði og öryggi.“


Tengdar fréttir

Biskup neitar að afhenda bréf sitt til séra Davíðs Þórs

Biskupsstofa telur sig undanþegna upplýsingalögum og hefur neitað fyrirspurn Vísis þess efnis að fá að sjá bréf Agnesar M. Sigurðardóttur biskups til Séra Davíðs Þórs Jónssonar í Laugarneskirkju þar sem hún veitir honum formlega áminningu.

„Hatursáróður getur aldrei beinst gegn valdhöfum“

Davíð Þór Jónsson sóknarprestur í Laugarneskirkju hafnar því að ummæli hans um að fyrirhugaður brottflutningur hátt í þrjú hundruð hælisleitenda og flóttamanna falli undir fasisma sé haturso. Hann segir áhyggjuefni að flokksmenn VG skilji ekki merkingu hatursorðræðu. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×