Viðskipti erlent

Elon Musk vill taka yfir Twitter

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Í nýju tísti segir Musk einfaldlega: „Ég var að gera tilboð.“
Í nýju tísti segir Musk einfaldlega: „Ég var að gera tilboð.“ Getty/Marquardt

Milljarðarmæringurinn Elon Musk hefur boðist til þess að kaupa Twitter á 41 milljarð bandaríkjadala. Hann segir nauðsynlegt að taka fyrirtækið af hlutabréfamarkaði til að ná fram raunverulegum breytingum og viðunandi árangri á samfélagsmiðlinum.

Í kauptilboði býður Musk 54,20 bandaríkjadali á hlut. Það er um 38 prósentum hærra en hlutabréf í fyrirtækinu voru metin á við lokun markaða 1. apríl síðastliðinn eða degi áður en Musk eignaðist 9 prósent hlut í fyrirtækinu. Heildarverð þeirra kaupa Musk eru metin á rúmar 763 milljónir bandaríkjadala.

Hans besta og síðasta tilboð

Skömmu eftir kaupin sagði Musk í bréfi til stjórnarformanns Twitter ljóst að þörf væri á breytingum innan fyrirtækisins. Það kæmi ekki til með að þjóna samfélaginu eða ná viðunandi árangri eins og nú horfir við.

„Tilboðið sem ég nú legg fram er mitt síðasta og besta. Ef það verður ekki samþykkt mun ég þurfa að endurskoða stöðu mína sem hluthafa í fyrirtækinu,“ sagði Elon enn fremur í bréfinu til stjórnarformannsins.

Elon Musk hefur verið mjög virkur á Twitter síðustu árin en rúmlega áttatíu milljónir fylgja honum á samfélagsmiðlinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×