Innlent

Fagnar því að Lilja standi með sannfæringu sinni

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Ásthildur Lóa Þórsdóttir hefur barist gegn sölu á Íslandsbanka í fleiri ár.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir hefur barist gegn sölu á Íslandsbanka í fleiri ár.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, varaformaður þingflokks Flokks fólksins fagnar því að Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra standi með sannfæringu sinni og segi hug sinn opinberlega varðandi Íslandsbankamálið. Ásthildur kallar eftir afsögn fjármálaráðherra.

Í Morgunblaðinu í gær sagðist Lilja hafa komið þeirri skoðun sinni á framfæri í ráðherranefnd að henni hugnaðist ekki sú leið sem stefnt var að í útboðinu. Sagði hún að það væri ekki aðeins Bankasýslan sem bæri ábyrgð heldur þeir stjórnmálamenn sem tóku ákvarðanir.

Ásthildur segir að það hafi verið óvænt að heyra Lilju tala opinskátt um sinn hug gagnvart Íslandsbankamálinu og að það sé jákvætt.

„Við hljótum náttúrulega að fagna því að ráðherrar stigi fram með þessum hætti að opinberi sína sannfæringu. Ég hefði viljað að hún hefði stigið fram í aðdraganda sölunnar en betra er seint en aldrei. Það að stjórnmálamenn standi með sannfæringu sinni, þó að það kunni að valda titringi og erfiðleikum, hljótum við að telja jákvætt.“

Hún kveðst sammála Lilju um að Íslandsbankamálið hafi verið algerlega fyrirsjáanlegt. Ásthildur segist þó ekki vita hvort henni finnist það fyrirsjáanlegt af sömu ástæðum og Lilja.

„Hjá mér er ástæðan sú að ég bara veit eftir baráttu undanfarinna ára að allt kerfið spilar með fjármálakerfinu alla leið þannig að þess vegna kemur þessi spilling sem þarna kristallast ekkert á óvart.“

Ásthildur Lóa starfaði þétt með fólki sem fór illa út úr hruninu í starfi sínu sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna. Hún segir Íslandsbankamálið ýfa upp gömul sár.

„Að horfa þarna á útrásarvíkinganna boðna velkomna. Það voru fimmtán þúsund fjölskyldur sem misstu heimili sín, að minnsta kosti, og það hefur aldrei verið gert upp. Það átti að sópa því undir teppið. Svo eru bara menn boðnir velkomnir til baka með peningana sem þeir náðu út úr bönkunum á sínum tíma, sem er kannski að mörgu leyti grunnurinn að þeirra auðæfum í dag. Þeir eru komnir aftur til að endurtaka leikinn.“

Hún segir fréttir af fyrirkomulagi útboðsins vera eins og blaut tuska í andlit þeirra sem misstu heimili sín og að fjármálaráðherra þurfi að axla ábyrgð.

„Mér finnst að Bjarni ætti að segja af sér. Ég hins vegar efast um að það gerist því það virðist ekkert loða við Bjarna, alveg sama hvað gerist.“


Tengdar fréttir

Telur alvarlega krísu á stjórnarheimilinu

Fjármálaeftirlitið hefur tekið söluna á Íslandsbanka til skoðunnar. Viðskiptaráðherra segir óeiningu hafa verið í ríkisstjórn um framkvæmdina en það var hvergi fært til bókar að sögn forsætisráðherra. Þingmaður stjórnarandstöðunnar segir krísuástand í ríkistjórn.

Við­skipta­ráð­herra segist hafa gagn­rýnt á­form í nefnd með for­sætis- og fjár­mála­ráð­herrum

Viðskiptaráðherra segist ekki vera undrandi á þeirri gagnrýni sem salan á Íslandsbanka hefur hlotið síðustu daga. Ábyrgðin hjóti að liggja hjá stjórnmálamönnum sem tóku ákvörðun í málinu. Varaformaður efnahags-og viðskiptanefndar segir að framkvæmd útboðsins hafi verið allt önnur en Bankasýslan kynnti fyrir nefndinni. Framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða segir mikilvægt að kanna hvort salan hafi farið fram á eðlilegan máta.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×