Fótbolti

Lewandowski á leið til Barcelona?

Atli Arason skrifar
Robert Lewandowski er ekki ánægður með samningstilboð Bayern München.
Robert Lewandowski er ekki ánægður með samningstilboð Bayern München. Getty Images

Pólski markahrókurinn Robert Lewandowski, leikmaður Bayern München, er í viðræðum við Barcelona samkvæmt ítalska félagaskipta sérfræðingnum Fabrizio Romano.

Samningur framherjans hjá Bayern München rennur út á næsta ári en Lewandowski er ekki ánægður með þau samningstilboð sem liggja á borðinu hjá Bayern sem stendur og er því að íhuga að færa sig um set. Sagt er að helsta ádeiluefnið er lengd samningstímans frekar en launagreiðslur.

Lewandowski hefur verið að heyra í vinum sínum í liði Barcelona og kanna hvernig andrúmsloftið er á Nývangi. Hinn 33 ára Pólverji á að hafa sagt við Barcelona að hann vilji fá þriggja ára samning hjá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×