Inter heldur pressu á Milan og Napoli

Atli Arason skrifar
Sigur í dag og Inter á góða möguleika á að verja titil sinn.
Sigur í dag og Inter á góða möguleika á að verja titil sinn. EPA-EFE/MATTEO BAZZI

Ivan Perisic var maður leiksins þegar hann lagði upp bæði mörk Inter gegn Verona í ítölsku seríu A deildinni í dag, lokatölur 2-0.

Nicola Barella skoraði fyrsta markið með utanfótar skoti fyrir utan vítateig á 22. mínútu leiksins áður en Edin Dzeko þurfti ekki meira en að pota boltanum yfir línuna á 30. mínútu og þar við sat.

Sigurinn þýðir að Inter er einungis einu stigi á eftir Milan sem situr á toppi deildarinnar með 67 stig. Napoli er jafnt Inter að stigum í öðru til þriðja sæti með 66 stig. Það stefnir því í spennandi þriggja hesta kapphlaup um meistaratitilinn í síðustu sjö leikjum deildarinnar.


Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira