Fótbolti

Hildur og Mist kepptu í Heiðursstúkunni: „Svolítið stressuð núna“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hildur Antonsdóttir og Mist Edvardsdóttir fóru í „ steinn, blað, skæri“ til að finna út hvor þeirra átti að byrja í hraðaspurningunum.
Hildur Antonsdóttir og Mist Edvardsdóttir fóru í „ steinn, blað, skæri“ til að finna út hvor þeirra átti að byrja í hraðaspurningunum. Vísir

Heiðursstúkan er þáttur sem verður einu sinni í viku á Vísi en sjöundi þátturinn er nú kominn inn á vefinn.

Um er að ræða spurningaþátt sem tengist leikjum og mótum sem eru á Stöð 2 Sport. Heiðursstúkan verður sýnd á Vísi alla föstudaga. Jóhann Fjalar Skaptason stýrir þættinum.

Þema sjötta þáttarins er Lengjubikarinn í fótbolta en undanúrslitaleikir kvenna fara fram um helgina.

Gestir þáttarins að þessu sinni eru knattspyrnukonurnar Hildur Antonsdóttir úr Breiðabliki og Mist Edvardsdóttir úr Val.

„Mér líst bara vel á þetta en ég er svolítið stressuð núna reyndar,“ viðurkenndi Hildur Antonsdóttir.

Þær eru báðar að fara að spila í undanúrslitum Lengjubikarsins inn á vellinum en nú er bara að sjá hvað þær vita um Lengjubikarinn en það smá sjá allan spurningaþáttinn hér fyrir neðan.

Klippa: Heiðursstúkan: Þáttur 7 - Lengjubikarinn í fótbolta



Fleiri fréttir

Sjá meira


×