Íslenski boltinn

Pablo Punyed skaut Víkingum í úrslit Lengjubikarsins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Víkingar eru á leið í úrslit Lengjubikarsins.
Víkingar eru á leið í úrslit Lengjubikarsins. Vísir/Hulda Margrét

Pablo Punyed skoraði eina mark leiksins er Íslandsmeistarar Víkings unnu 1-0 sigur gegn KR í undanúrslitum Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld.

Ekkert var skorað í fyrri hálfleik og því var staðan 0-0 þegar gengið var til búningsherbergja. Eina mark leiksins skoraði Pablo Punyed snemma í síðari hálfleik þegar hann batt endahnútinn á góða skyndisókn Víkinga eftir stoðsendingu frá Erlingi Agnarssyni.

KR-ingar fengu reyndar gullið tækifæri til að jafna metin af vítapunktinum eftir rúmlega klukkutíma leik. Ægir Jarl Jónasson fór á punktinn, en Ingvar Jónsson varði frá honum. Ægir tók frákastið og skallaði að marki, en aftur varði Ægir.

KR-ingum tókst því ekki að finna jöfnunarmark og niðurstaðan varð 1-0 sigur Víkinga sem eru á leið í úrslit. Þar mæta þeir annað hvort Stjörnunni eða FH.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×