Liverpool eykur pressuna á City

Atli Arason skrifar
Luis Díaz fagnar 
Luis Díaz fagnar  Getty

Liverpool átti ekki í miklum erfiðleikum með Brighton & Hove Albion í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool vann leikinn 0-2 á Amex vellinum í Brighton.

Luis Díaz kom gestunum frá Liverpool yfir á 19. mínútu með kollspyrnu eftir frábæra sendingu frá Joel Matip. Eftir klukkutíma leik átti Naby Keita marktilraun sem Yves Bissouma handlék innan teigs. Mohamed Salah steig á punktinn og skoraði auðveldlega á mitt markið.

Með sigrinum minnkar Liverpool forskot Manchester City á toppi deildarinnar niður í þrjú stig. Manchester City leikur gegn Crystal Palace á mánudaginn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira