Udinese náði í stig á San Siro

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Rafael Leao skoraði mark AC Milan í kvöld.
Rafael Leao skoraði mark AC Milan í kvöld. Marco Luzzani/Getty Images

AC Milan og Udinese gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik kvöldsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Heimamenn í Milan misstigu sig í toppbaráttunni en þeir eru í harðri baráttu við Inter og Napoli um ítalska meistaratitilinn.

Heimamenn voru töluvert meira með boltann í dag en Udinese ógnuðu mikið með hraða sínum og krafti. AC Milan tók forystuna eftir tæplega hálftíma leik, Rafael Leão skoraði þá eftir sendingu Sandro Tonali, staðan 1-0 í hálfleik.

Hinn 19 ára gamli Destiny Udogie jafnaði metin í síðari hálfleik og þar við sat, lokatölur 1-1.

Milan er þó enn á toppnum, nú með 57 stig eftir 27 leiki. Inter er þremur stigum á eftir nágrönnum sínum en eiga tvo leiki til góða. Napoli er svo jafnt Inter að stigum með jafn mörg stig eftir að hafa leikið leik meira.


Serie A er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 kr. á mánuði. Upplýsingar um beinar útsendingar frá ítalska boltanum má finna hér.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira