Handbolti

Stjarnan í átta liða úrslit eftir öruggan sigur

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Stjarnan er á leið í átta liða úrslit Coca Cola bikarsins.
Stjarnan er á leið í átta liða úrslit Coca Cola bikarsins. Vísir/Vilhelm

Stjarnan vann öruggan tíu marka sigur gegn FH sem leikur í Grill66 deild kvenna er liðin mætturs í 16-liða úrslitum Coca Cola bikarsins í kvöld, 28-18.

Gestirnir frá Garðabænum höfðu góð tök á leiknum allt frá upphafi, en Stjarnan leiddi með sjö mörkum þegar flautað var til hálfleiks, staðan 15-8.

Heimakonur í FH náðu ekki að gera atlögu að forskoti Stjörnunnar í síðari hálfleik og niðurstaðan varð því tíu marka sigur gestanna, 28-18.

Elísabet Gunnarsdóttir var markahæst í liði Stjörnunnar með sjö mörk, en í liði FH var Hildur Guðjónsdóttir atkvæðamest með níu mörk.

Stjarnan er því á leið í átta liða úrslit Coca Cola bikarsins þar sem liðið mætir ÍBV í Vestmannaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×