Sport

Dagskráin í dag - Napoli getur komist á toppinn

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Geta komist á toppinn.
Geta komist á toppinn. vísir/Getty

Það verður ítalskur tvíhöfði á sportstöðvum Stöðvar 2 í kvöld.

Fyrst mætast Cagliari og Napoli á Stöð 2 Sport 3 og hefst útsending klukkan 17:50 en um er að ræða mikilvægan leik fyrir Napoli sem getur eignað sér toppsæti deildarinnar eftir að Inter missteig sig gegn Sassuolo í gær.

Í kjölfarið fer svo fram leikur Bologna og Spezia sem sitja í 14. og 15.sæti deildarinnar en sá leikur verður sýndur á Stöð 2 Sport 4.

Auk ítalska boltans verður GameTíví með sinn vikulega þátt á Stöð 2 ESport klukkan 20:00. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×