Sport

Elvar Már og félagar aftur á sigurbraut

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Elvar MárFriðriksson og félagar hans unnu góðan sigur í dag.
Elvar MárFriðriksson og félagar hans unnu góðan sigur í dag. HLN.BE

Elvar Már Friðriksson og félagar hans í Antwerp Giants unnu góðan tólf stiga sigur er liðið tók á móti Limburg í belgísku deildinni í körfubolta í dag. Lokatölur urðu 94-82, en Elvar og félagar höfðu tapað seinustu tveimur deildarleikjum sínum.

Heimamenn í Antwerp Giants tóku forystuna strax í upphafi leiks og leiddu með tíu stigum að fyrsta leikhluta loknum. Þeir héldu því forskoti út fyrri hálfleikinn, en þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 49-39, Antwerp í vil.

Heimamenn mættu aftur grimmir til leiks í síðari hálfleik og náðu mest 24 stiga forskoti í þriðja leikhluta. Gestirnir gáfu sig þó ekki og náðu að minnka muninn fyrir lokaleikhlutann niður í 13 stig.

Elvar og félagar héldu gestunum í hæfilegri fjarlægð í lokaleikhlutanum og unnu að lokum góðan tólf stiga sgiur, 94-82.

Elvar skoraði níu stig fyrir heimamenn í dag, en ásamt því tók hann fimm fráköst og gaf 13 stoðsendingar. Antwerp Giants situr nú í þriðja sæti deildarinnar með 29 stig eftir 18 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×