United hafði betur gegn fornum fjendum í sex marka leik

Anthony Elanga og Fred skoruðu b´ðair fyrir Manchester United í dag.
Anthony Elanga og Fred skoruðu b´ðair fyrir Manchester United í dag. Shaun Botterill/Getty Images

Manchester United vann mikilvægan 4-2 sigur er liðið heimsótti forna fjendur í Leeds á Elland Road í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Það var Harry Maguire sem braut ísinn fyrir gestina með skallamarki eftir hornspyrnu Luke Shaw á 34. mínútu. Leikmenn Manchester United hafa verið gagnrýndir á tímabilinu fyrir að skora ekki úr hornspyrnum, en liðið hafði tekið 139 slíkar í röð án þess að skora.

Gestirnir tvöfölduðu forystu sína seint í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar Bruno Fernandes kom boltanum í netið eftir stoðsendingur frá Jadon Sanco og staðan því 2-0 þegar gengið var til búningsherbergja.

Heimamenn voru þó ekki tilbúnir að gefast upp og Rodrigo minnkaði muninn fyrir Leeds á 53. mínútu. Þeir jöfnuðu svo metin tæplega mínútu síðar þegar Raphinha stýrði fyrirgjöf Daniel James í netið og allt í járnum.

Varamaðurinn Fred kom United yfir á nýjan leik með góðu marki þegar um tuttugu mínútur lifðu leiks og það var svo Svíinn ungi Anthony Elanga sem gulltryggði 4-2 sigur gestanna.

Manchester United tók því stigin þrjú og styrkti stöðu sína í fjórða sæti deildarinnar, en liðið er með 46 stig eftir 26 leiki.

Leeds situr hins vegar í 15. sæti deildarinnar með 23 stig, aðeins fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira