Innlent

Kristrún ferðast um landið og útilokar ekki formannsframboð

Heimir Már Pétursson skrifar
Kristrún segir húsnæðismálin ekki síður úrlausnarefni á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Uppgangur í atvinnulífinu á sunnanverðum Vestfjörðum hafi til dæmis skapað húsnæðisskort á svæðinu.
Kristrún segir húsnæðismálin ekki síður úrlausnarefni á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Uppgangur í atvinnulífinu á sunnanverðum Vestfjörðum hafi til dæmis skapað húsnæðisskort á svæðinu. FB síða Kristrúnar

Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík er á ferð um landið til að kynna sig og kanna þau málefni sem efst eru á baugi. Hún útilokar ekki framboð til formanns en segir það ekki ástæðu ferða hennar.

Það er ekki algengt að þingmenn Reykjavíkur auglýsi fundaferð um landið eins og Kristrún Frostadóttir gerir nú fjórum mánuðum eftir kosningar undir slagorðinu Samræða um framtíðina. Hún var kjörin í fyrsta skipti á Alþingi fyrir Reykjavík suður í síðustu kosningum og telja margir að hún sé framtíðar formannsefni.

„Mér finnst það frekar merkilegt að maður þurfi að vera á leiðinni í formannsframboð til að hafa áhuga á að fara út á land og tala við fólk. Þetta er eitthvað sem ég ákvað að gera í rauninni um leið og ég settist inn á þing. Að eiga milliliðalaust samtal við almenning í landinu,“ segir Kristrún.

Við hittum á þingkonuna þar sem hún var stödd á Ísafirði en hún hafði þá þegar lagt suðurfirðina að baki en Samfylkingin á ekki þingmann í Norðvesturkjördæmi. Hún segir allt öðruvísi að tala við fólk nú en í miðri kosningabaráttu.

Kristrún segir áhugavert hvað mörg úrlausnarefnin væru svipuð á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu eins og húsnæðisskortur á sunnaverðum Vestfjörðum. Ástand samgangna á Vestfjörðum skæri sig hins vegar úr. Þar væri mikilla úrbóta þörf.

„Að keyra á þessum árstíma á þessu svæði er náttúrlega ótrúlegt. Þetta var nákvæmlega það sem ég var að leitast eftir í þessari ferð. Að fara hér svo til ein á bíl, í heimagistingu hjá fólkinu á svæðinu og eiga þessi samtöl og upplifa bara brotabrot á eigin skinni hver veruleiki fólks er,“ segir Kristrún.

Í Kryddsíld Stöðvar 2 á gamlársdag sagði Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar flokkinn eiga öflugt lið til forystu.

„Við verðum með landsfund í október. Þá kemur í ljós hvernig við teflum okkar forystu fram.“

Ætlar þú að halda áfram?

„Ég ætla ekkert að segja til um það fyrr en bara í sumar,“ sagði Logi í Kryddsíldinni.

Kristrún segist þakklát fyrir að sumir sjái hana sem formannsefni.

„En á þessum tímapunkti er bara of snemmt að segja til um svoleiðis áform. Það eru tíu mánuðir í landsfund. Ég er búin að vera á þingi í nokkra mánuði. Þannig að þetta er einhver ákvörðun sem ég þarf að taka síðar meir,“ segir Kristrún Frostadóttir.


Tengdar fréttir

Telur fjár­mála­ráð­herra grípa of seint til efna­hags­að­gerða

Þingmaður í stjórnarandstöðu segir efnahagsaðgerðir samhliða samkomutakmörkunum koma fram heldur seint og telur umhugsunavert að hlutabótaleiðin sé ekki á meðal aðgerða á meðan sakir standa. Hún veltir því fyrir sér hvar fjármálaráðherra sé nú þegar verið er að tilkynna íþyngjandi aðgerðir fyrir efnahagslífið.

Vonarstjörnur hvor af sínum vængnum takast á um stóru málin

Alþingi hófst fyrir alvöru í gær þegar kosið var í fastanefndir þingsins og umræður fóru fram um fyrstu stefnuræðu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í endurnýjaðri ríkisstjórn. Heimir Már Pétursson fréttamaður fær til sín kjarnakonurnar Kristrúnu Frostadóttur þingmann Samfylkingarinnar og Guðrúnu Hafsteinsdóttur þingmann Sjálfstæðisflokksins í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2/Vísi í dag.

Kristrún spilaði á harmonikkuna fyrir Heimi

Kristrún Frostadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, gerði sér lítið fyrir og greip í harmonikkuna í setti hjá Heimi Má á kosningakvöldi Stöðvar 2.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×