Lífið

Íslandsferð ofurparsins Idris og Sabina Elba vekur athygli

Eiður Þór Árnason skrifar
Hjónakornin virðast hafa átt góðar stundir hér á landi.
Hjónakornin virðast hafa átt góðar stundir hér á landi. Samestt

Enski leikarinn Idris Elba og fyrirsætan Sabina Elba voru stödd á Íslandi á Valentínusardaginn. Sabina deilir myndskeiði úr ferðinni á Instagram-síðu sinni og virðist sem hjónin hafi verið hæstánægð með dvöl sína á The Retreat, fimm stjörnu lúxushóteli Bláa lónsins í Grindavík.

Á myndskeiðinu sem er klippt saman úr nokkrum klippum sjást hjónin spjalla, gantast og hlægja áður en þau deila kossi fyrir framan myndavélina. Þau gengu í hjónaband árið 2019. Íslandsferð Idris og Sabinu hefur vakið athygli erlendra miðla á borð við hinn breska Daily Mail.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Idris kemur til Íslands en hann fer með aðalhlutverk í næstu kvikmynd Baltasars Kormáks sem ber heitið Deeper. Tökur hófust síðasta sumar og fóru fram á Íslandi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×