Innlent

Sýnatökum fækkar en biðin eftir niðurstöðu er enn löng

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Sýnatökum hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur fækkað nokkuð eftir að sóttkví var afnumin. 
Sýnatökum hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur fækkað nokkuð eftir að sóttkví var afnumin.  Vísir/Vilhelm

Enn er nokkuð löng bið eftir niðurstöðum úr sýnatöku fyrir Covid-19. Heilsugæslan tekur nú töluvert færri sýni en spítalinn fær sýni úr fleiri áttum og er staðan enn þung. Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins telur að mögulega verði hægt að taka hrað- eða heimapróf gild í stað PCR. 

Fyrir helgi var greint frá því að biðtíminn gæti verið allt að þrír sólarhringar og virðist hann lítið hafa styst frá þeim tíma.

Guðrún Svanborg Hauksdóttir, yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítala, segir að enn sé verið að vinna upp þann hala sem myndaðist þegar hvað mest barst af sýnum en halinn er að styttast. Hún segir ómögulegt að segja til um það hvort að biðtímin komi til með að styttast verulega á næstu dögum.

„Til að allt gangi að óskum má sýnum ekki fjölga, tækin mega ekki bila og starfsfólkið ekki að verða veikt svo einhverju nemi. Allt er þetta mjög óljóst,“ segir Guðrún.

Fyrir helgi greindi Guðrún frá því að um eða yfir sjö þúsund sýni væru að berast á sólarhring en deildin ræður við að greina um fimm þúsund sýni á sólarhring. Þannig höfðu sýni safnast upp milli daga sem lengdi biðina enn frekar.

„Það eina sem við getum sagt er að halinn lengist ekki,“ segir Guðrún í dag.

Heilsugæslan tekur færri sýni en spítalinn fær fleiri

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði til síðastliðinn fimmtudag að hraðprófum yrði beitt í auknum mæli í ljósi mikils álags á veirufræðideildinni. Þannig yrði þak sett á fjölda PCR sýna sem yrðu tekin á dag og aðrir sendir í hraðpróf. Degi síðar var þó tilkynnt að sóttkví yrði ekki lengur beitt og þar með ætti sýnum að fækka.

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að það hafi ekki komið til þess að beita hraðprófum líkt og sóttvarnalæknir lagði til.

„Nú duttu sóttkvíarsýnin út og það eru ekki það mörg PCR hjá okkur, þetta eru á milli tvö til þrjú þúsund PCR sýni á dag hjá okkur og okkur er sagt að það eigi að ganga,“ segir Ragnheiður.

Guðrún bendir þó á að Landspítali fái fleiri sýni en bara þau sem Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu tekur, til að mynda frá Keflavíkurflugvelli, frá sjúklingum og starfsmönnum Landspítala, frá hjúkrunarheimilum og öðrum heilsugæslum á landinu.

„Svo er mikilvægt að hafa í huga að við getum ekki haft áhrif að þann tíma sem líður frá því að sýnið er tekið, þangað til það kemur til okkar á deildina. Sá tími er stundum langur og bætist þá við vinnslutímann,“ segir Guðrún.

Mögulega hægt að taka hrað- eða heimapróf gild í stað PCR

Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, ræddi málin í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær en þar tók hann undir að nokkuð löng bið væri eftir niðurstöðum. Eins og stendur greinast um 40 prósent þeirra sem mæta í einkennasýnatökur með Covid.

„Enn sem komið er þá er það þannig að spítalinn ræður ekki alveg við þann fjölda sýna sem eru tekin daglega núna þannig það dregst aðeins að fá svar,“ sagði Óskar.

Að sögn Óskars er mögulegt að breytingar verði gerðar á fyrirkomulagi sýnataka, til að mynda að hraðpróf yrðu tekin gild líkt og PCR sýnatökur.

„Það eru sum lönd sem taka mark á hraðgreiningarprófum, þannig ef þú færð jákvætt úr hraðgreiningarprófi, sem þú tekur jafnvel sjálfur, þá tilkynnir þú það bara á ákveðinn stað og þá er það komið inn til jafngildis við aðrar rannsóknir,“ sagði Óskar.

Það er þó ekki staðan hér á landi en Óskar segir að það sé vel mögulegt að það verði tekið upp.

„Það er mjög lítið um falskt jákvætt sýni, það er að þú mælist eins og þú sért með Covid en ert það í raun ekki. En það er hins vegar eitthvað um falskt neikvætt sýni, þess vegna er enn mælst til að taka PCR sýni úr öllum sem eru með einkenni,“ sagði Óskar.


Tengdar fréttir

Gæti slokknað í faraldrinum á næstu tveimur vikum

Sóttvarnalæknir segir þjóðina á hraðri leið í hjarðónæmi nú þegar fjórðungur landsmanna hefur verið greindur með kórónuveiruna. Útbreiðslan sé líklega mun meiri og ekki sé óvarlegt að áætla að helmingur þjóðarinnar eða meira hafi smitast.

Heilsugæslan og Læknavaktin taka við Covid-göngudeildinni

Heilsugæslan og Læknavaktin munu taka við meginhluta af þjónustu og eftirliti með þeim sem eru veikir af Covid-19 af Landspítala frá og með deginum í dag. Yfirfærslan er í samræmi við þróun faraldursins hér á landi þar sem sífellt færri greinist alvarlega veikir.

Ríkis­sjóður greitt 1,3 milljarða fyrir hrað­próf

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa greitt rúmar 950 milljónir króna til einkaaðila vegna hraðprófa. Að sögn SÍ er líklegt að þessi tala eigi eftir að hækka þar sem reikningar fyrir þessa þjónustu berist stofnuninni með óreglulegum hætti.

Tæplega 10 þúsund manns losnuðu úr sóttkví í dag

Tæplega tíu þúsund manns losnuðu úr sóttkví í dag og hún heyrir nú sögunni til vegna tilslakana á sóttvarnaráðstöfunum. Frá miðnætti mega tvö hundruð manns koma saman og opnunartími veitinga- og skemmtistaða lengist. Stefnt er að því að aflétta öllum aðgerðum í lok mánaðar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×