Innlent

Guð­björg Odd­ný vill 3. sætið hjá Sjálf­stæðis­mönnum í Hafnar­firði

Atli Ísleifsson skrifar
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Aðsend/Aldís Pálsdóttir

Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, varabæjarfulltrúi og varaþingmaður, sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sem fram fer dagana 3.-5. mars næstkomandi.

Í tilkynningu frá Guðbjörgu Oddnýju segir að hún sé uppalin í Hafnarfirði, fædd árið1985 og sé gift Gísla Má Gíslasyni, hagfræðingi. Þau eiga saman þrjú börn.

„Guðbjörg Oddný skipaði 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum árið 2008 og varð þar fyrsti varabæjarfulltrúi flokksins. Hún hefur setið í fjölskylduráði, fræðsluráði og sem formaður menningar- og ferðamálanefndar. Guðbjörg er fulltrúi bæjarins í stjórn Markaðsstofu Hafnarfjarðar. Guðbjörg var einnig á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í alþingiskosningunum sl. haust og varð þá varaþingmaður í Suðvesturkjördæmi.

Guðbjörg Oddný hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn síðustu 12 ár og hefur meðal annars setið í stjórn Stefnis, félags ungra Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði og stjórn Fram, Sjálfstæðisfélags Hafnarfjarðar, sem varaformaður. Hún situr núna í stjórn fulltrúaráðsins í Hafnarfirði og í framkvæmdastjórn Landssambands Sjálfstæðiskvenna.

Guðbjörg Oddný starfar sem samskiptastjóri og aðstoðarmaður framkvæmdastjóra hjá Benchmark Genetics,“ segir í tilkynningunni.

Sífellt að efla að þróa þjónustuna

Haft er eftir Guðbjörgu Oddnýju að það sé frábært að ala upp börn í Hafnarfirði og að hún vilji leggja sitt af mörkum til að svo verði áfram. 

„Við þurfum sífellt að leita leiða til að efla og þróa þjónustuna fyrir íbúa á öllum aldri og grípa tækifærin sem nóg er af í bænum. Ég hef mikinn áhuga á að gera gagn fyrir samfélagið okkar og tel reynslu mína og framtíðarsýn koma að góðum notum í bæjarstjórn Hafnarfjarðar."

Ég vil að við höldum áfram að þjónusta fjölskyldur vel í Hafnarfirði. Við verðum að hlúa vel að börnunum okkar og leyfa þeim að blómstra í bæði námi og leik. Mikilvægt er að halda áfram að styðja vel við íþróttafélögin og einnig við skapandi frístundir svo að allir finni eitthvað við sitt hæfi.

Hafnarfjörður er besti staðurinn til að ala upp börnin okkar og við verðum að leitast að því að bæta þjónustuna á hverju degi til að halda því þannig. Verði ég bæjarfulltrúi mun ég leita leiða við að gera betur fyrir fjölskyldur og hlúa að þeim í sífellt breytilegum heimi. Ég legg áherslu á það að bærinn reyni að einfalda lífið fyrir fjölskyldur og við vinnum saman að því að minnka flækjustig og stress. Það er meðal annars mikilvægt að dagvistun barna frá 12 mánaða aldri sé tryggð svo foreldrar geti snúið til baka til vinnu eftir fæðingarorlof,“ er haft eftir Guðbjörgu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×