Innlent

1.890 greindust innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Rúmlega 11 þúsund manns eru nú í einangrun.
Rúmlega 11 þúsund manns eru nú í einangrun. Vísir/Vilhelm

1.890 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 62 á landamærum.

Frá þessu segir á síðunni covid.is. 11.465 eru nú í einangrun vegna Covid-19 samanborið við 10.241 á föstudaginn þegar síðan var síðast uppfærð. 194 eru í skimunarsóttkví.

47 eru nú á sjúkrahúsi með Covid-19, en voru 34 á föstudaginn. Þrír eru á gjörgæslu.

Alls voru 3.967 einkennasýni greindi í gær og 1.145 landamærasýni.

92.127 hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar 2020. 23 prósent íbúa hafa nú greinst með Covid-19. 55 hefur látist á Íslandi vegna COVID-19 frá upphafi faraldursins.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 6.397 en var 5.564 á föstudaginn. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 193



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×