Innlent

Velti bílnum í Ár­túns­brekku

Atli Ísleifsson skrifar
Tilkynning barst um bílveltuna klukkan 7:45.
Tilkynning barst um bílveltuna klukkan 7:45. Vísir/Vilhelm

Bílvelta varð í Ártúnsbrekku á áttunda tímanum í morgun. Mikill snjór er á götum borgarinnar eftir nóttina og færð eftir því.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var bíllinn að keyra í vesturátt þegar slysið varð. Meiðsl á ökumanni hafi verið minniháttar.

Tilkynning barst um bílveltuna um 7:45, en að sögn keyrði ökumaður bílnum sjálfur í burtu af slysstaðnum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×