Heilsa

„Lífið er of stutt fyrir vondan mat“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Leikkonan Aldís Amah Hamilton segist fyrst og fremst vera dýraunnandi.
Leikkonan Aldís Amah Hamilton segist fyrst og fremst vera dýraunnandi. Instagram @aldisamah/Saga Sig

Aldís Amah Hamilton er leikkona, hundamamma, vegan áhugakokkur og lífskúnstner sem fór með aðalhlutverk í spennuþáttunum Svartir Sandar sem sýndir voru á Stöð 2. Ásamt því að vinna við það sem hún elskar er hún dugleg að hlusta á hlaðvörp um morðingja, spila PS4 og ýmislegt fleira. Aldís Amah er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.

Innblásturinn er fastur liður hjá Lífinu á Vísi þar sem rætt er við ólíkt fólk um hvað veitir því innblástur í tilverunni og hvaða ráðum þau luma á varðandi andlega heilsu.

Hver ert þú í þínum eigin orðum?

Aldís Amah: Dýraunnandi held ég fyrst og fremst. Ég er líka mjög réttlætissinnuð og jafnvel um of stundum haha. En ég vil frekar hallast í áttina að öfgum þegar það kemur að þeim sem eru undir í samfélaginu og almennt bara heiminum. 

Þannig í raun held ég að það séu engar öfgar, ég vil bara að dýrum og mönnum líði sem best EN geti gert það í góðu sambandi við náttúru og umhverfi.

Hugvísindi og hlaðvörð um morðingja

Hvað veitir þér innblástur?

Aldís Amah: Hlaðvörp! Ég hlusta daglega á þau. Ég leita mikið í hugvísindi en hlusta líka á hlaðvörp um morðingja haha. Mín uppáhalds leggja alltaf mikið upp úr því að við „skiljum“ hvað býr til og mótar þetta fólk og þar koma hugvísindin aftur sterk inn. Sagnfræðileg hlaðvörp heilla mig líka og sögulegar persónur geta keyrt hugarflugið af stað, þó þær hafi ekki verið fjöldamorðingar!

Hvað er þitt besta ráð til að næra andlega heilsu?

Aldís Amah: Að fara úr bænum og dvelja utan hans þegar tækifæri gefst. Með eða án fólks, bara komast aðeins burt. Að hitta fólkið sem þú elskar er oft mjög nærandi en sökum ástands ekki alltaf hægt, jafnvel erum við föst heima. 

Ef þessir möguleikar eru ekki fyrir hendi þá mæli ég með að taka sér HEILAGAN „frídag“ og skipuleggja hann út frá því sem veitir gleði. 

Ég gríp til hluta eins og tölvuleikja, hlaðvarpa, bókalesturs af Audible/Storytel eða, ég er ekki að grínast, ÞRÍF. Þegar ég hef allt hreint í kringum mig líður mér alltaf mikið betur andlega og er móttækilegri fyrir áskorunum.

Innri klukkan rannsóknarefni út af fyrir sig

Hvernig er hefðbundinn dagur í þínu lífi?

Aldís Amah: Núna þegar að við erum komin svona langt inn í Covid-lífið held ég að þetta sé orðið „hefðbundið“. Það er mikil viðvera heima. Verandi sjálfstætt starfandi er engin regla varðandi vinnutíma og fundi en sé ekkert slíkt á dagskrá vakna ég samt nær alltaf snemma (ég er með innri klukku sem er alveg rannsóknarefni út af fyrir sig), geri mér te og les, spila leik eða svara skilaboðum uppi í rúmi alveg til svona ellefu. Þá næri ég mig og tek smá vinnutörn. Annan hvern dag fer ég í ræktina eða út með hundinn (tek það fram að ég skiptist á með foreldrum, tíkin okkar fer oft á dag út).

Ég er dugleg að spila PS4 seinnipart dags og enda svo á því að elda eitthvað mjög gott því lífið er of stutt fyrir vondan mat.

Svo horfi ég á sjónvarpið og þá helst leikið efni sem hefur verið mælt með.

Hvað er það skemmtilegasta við lífið?

Aldís Amah: Lífið í Covid er alveg frábært að mörgu leyti, en það er talsvert tilbreytingalausara en það var áður, sem hefur sína kosti og galla. Þessa dagana finnst mér skemmtilegast að skapa sögur, eyða tíma með mínum nánustu vinum og vandamönnum og auðvitað leika mér, í vinnu og utan hennar. Fyrir Covid (raunveruleiki sem ég vona að eigi sér stað aftur) var það líka að ferðast hérlendis sem og erlendis án allra þessara takmarkanna. 

Og dansa og djamma fram á rauða nótt! 

Ég sakna þess heiftarlega, þó ég sé komin á fertugsaldur.

Tengdar fréttir

„Hyljari er ein af mínum uppáhalds vörum“

Í hverjum þætti af Snyrtiborðinu með HI beauty gefa þær Ingunn Sig og Heiður Ósk góð ráð tengd förðun. Í fyrsta þættinum talar Heiður Ósk um hyljara. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×